Til hamingju með Dag leikskólans

Formaður og varaformaður KÍ óska kennurum, stjórnendum og starfsfólki leikskólanna til hamingju með daginn.
Við óskum kennurum, stjórnendum og starfsfólki leikskólanna innilega til hamingju með daginn. Það er full ástæða til að fagna Degi leikskólans ár hvert og minnast þess hversu ötult starf er unnið í leikskólum landsins á degi hverjum.
Sjötti febrúar er merkisdagur í sögu leikskólans en það var á þessum degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu sín fyrstu samtök. Markmiðið með deginum er að auka umræðu um leikskólann, vekja athygli á hlutverki leikskóla og starfi leikskólakennara.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið og ekki hægt að hugsa sér skólakerfið án þess. Menntun yngri barna er ekki síður mikilvæg en þeirra sem eldri eru. Leikskólakennarar, stjórnendur og starfsfólk leikskólanna vita að lengi býr að fyrstu gerð og fagmennska er ávallt höfð að leiðarljósi í öllu starfi leikskólanna.
Síðustu árin hefur útskrifuðum leikskólakennurum fjölgað jafnt og þétt. Á síðasta ári voru umsóknir um leikskólakennaranám 20 prósent fleiri en árið á undan. Þetta er jákvæð þróun sem hefur mikla þýðingu fyrir leikskólasamfélagið.
Við hvetjum leikskólafólk til að halda upp á daginn og um leið vekja athygli á því flotta og metnaðarfulla starfi sem unnið er innan leikskólanna.
Til hamingju með Dag leikskólans!