Til hamingju með áfangann! en hvað svo?
„Það vantar sárlega fleiri og fjölbreyttari námsleiðir með markvissari tengsl út í atvinnulífið. Í dag þykir sjálfsagt að ein af brautum framhaldsskólanna sé starfsbraut/sérnámsbraut," segir Svana Björk Karlsdóttir, framhaldsskóla- og sérkennari við Flensborgarskólann, í nýjum Vikupósti sem birtur er á vef FF.
Svana fjallar um fyrirkomulag starfs- og sérnámsbrauta í grein og segist margoft hafa séð nemendur blómstra í slíku námi en því miður sér skortur á tækifærum hjá þessum nemendahópi við útskrift úr framhaldsskólanum. „Eftir fjögurra ár nám útskrifast nemendur án nokkurra réttinda eða aðgöngumiða til frekara náms. Sama hversu hart þeir hafa lagt að sér og hversu mikinn metnað þeir hafa sýnt."
Svana spyr hvort ekki sé kominn tími á næsta skref í þessum málaflokki.
Hægt er að lesa Vikupóst Svönu á vefsvæði FF.