Þurfum að standa vörð um faglegt sjálfræði kennara

„Stöndum vörð um faglegt sjálfræði kennara, því þar liggur sérfræðiþekkingin,“ voru lokaorð Guðrúnar Ragnarsdóttur prófessors á Skólamálaþingi KÍ í gær. Þingið var ákaflega vel sótt og líflegar umræður sköpuðust í pallborðsumræðum eftir faglega fyrirlestra þátttakenda.
Félagsfólk Kennarasambands Íslands safnaðist saman í Stórholti, sal sambandsins í Borgartúni 30, í gær til að fylgjast með árlegu Skólamálaþingi KÍ. Fjöldi fólks tók einnig þátt í þinginu í streymi. Fagmennska og stöðugleiki: Gildi kennarastéttarinnar var yfirskrift þingsins í ár og dagskráin var þétt. Hér er hægt að horfa á þingið.
Allir hagnast á gæðamenntun
Um leið og Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, bauð gesti velkomna útskýrði hún að þema þingsins í ár tengdist beint ímyndarherferð sambandsins og ákallinu um að fjárfesta í kennurum – börnunum, samfélaginu og framtíðinni til heilla.
„Lykilskilaboðin eru að samfélagið allt hagnist á gæðamenntun til handa börnunum okkar. Kennarar eru þar í aðalhlutverki enda búa þeir yfir sérfræðiþekkingu og sinna störfum sínum af fagmennsku. Börn eiga að búa við stöðugleika í skólanum og þeim á að líða vel. Þess vegna verðum við að fjárfesta í kennurum,“ sagði varaformaðurinn, um leið og hún minnti á samhljóðandi skilaboð Alþjóðasamtaka kennara og Sameinuðu þjóðanna í tilefni Alþjóðadags kennara, sem haldinn er hátíðlegur um allan heim 5. október ár hvert.
„Ákall á heimsvísu felur í sér að við tökum höndum saman og hvetjum stjórnvöld allra landa til að virða raddir kennara að verðleikum, fjárfesta í kennurum og efla opin menntakerfi. Þema dagsins undirstrikar hve brýnt það er að eiga samtal við kennara um hvernig best sé að takast á við þær áskoranir sem blasa við, og ekki síst, er mikilvægt að viðurkenna – og um leið njóta góðs af – sérfræðiþekkingu kennara og framlagi þeirra til menntunar.“

Það gladdi mig að sjá hve áhugasamir kennarar eru um efni þingsins; fagmennsku og gildi stéttarinnar
Þversögn fólgin í kröfunni um fagmennsku kennara
Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Menntavísindasvið HÍ og annar aðalfyrirlesara þingsins, fjallaði um gildi og fagmennsku kennara. Eftir að hafa krufið hugtakið „fagmennska“ og í hverju það felst hvað varðar kennarastéttina kom Ólafur Páll að þeirri þversögn sem innbyggð er í fagmennsku kennara.
Fagmanneskja er einhver sem af frjálsum vilja gefur yfirlýst loforð um að þjóna einstaklingum sem óska ákveðinna gæða, eins og til dæmis menntunar, og stuðla að þeim gæðum. Flestir eru sammála um að menntun séu mikilsverð grundvallargæði samfélags, jafnvel þótt ekki allir séu sammála um hvað sé í raun góð menntun og hvað í henni felst, útskýrði Ólafur Páll. Hugtakið menntun er þó skilgreint frekar, meðal annars í lögum og Aðalnámskrá, þar sem kemur fram að grundvöllur almennra gæða menntunar séu alhliða þroski barna, velferð, farsæld og almenn menntun. Fagmennska kennara snýst þá um að stuðla að og veita þessi almennu gæði menntunar.
Önnur gæði og hæfni koma þá einkum til sem leið að þessu marki. Önnur gæði og hæfni eins og til dæmis að læra að lesa og reikna. Sú hæfni er þá í raun ekki hluti af fagmennsku kennara, segir Ólafur, heldur aðeins ein leið að markmiðinu að hinum almennu gæðum að mennta borgaranna.
Ólafur Páll í pontu
Og það er hér sem þversögnin birtist. Til að vera trúir fagmennsku sinni geta kennarar í raun gert lítið annað en að vinna að þessum öðrum gæðum og annarri hæfni í sínum störfum. „Þess utan getur engin manneskja gert aðra manneskju farsæla,“ segir hann. Kennari getur ekki gert barn farsælt enda eru farsæld ekki gæði sem einhver getur veitt öðrum. „Í þeim skilningi er starf kennarans óvinnandi.“
„Allt sem kennari getur gert til að vera trúr þeim grundvelli sem fagmennska hans hvílir á er að búa í haginn – finna til nesti og nýja skó – og vona svo að för nemandans út í lífið verði farsæl. Þetta er þversögnin sem er innbyggð í fagmennsku kennara.“
Sjálfráða kennarar í forystu
Þá var komið að Guðrúnu Ragnarsdóttur, prófessor í stjórnun menntastofnana við Menntavísindasvið HÍ, sem flutti erindið: Mikilvægi faglegs sjálfræðis í pólitísku umróti og hröðum samfélagsbreytingum.
Í faglegu sjálfræði felst vald sérfræðistétta til að taka ákvarðanir um starfið, útskýrði Guðrún. „Sjálfræði kennarastéttarinnar felst í því að taka sjálfstæðar ákvarðanir um inntak námsins, kennsluefni, kennsluaðferðir og um starfið,“ segir hún. Kennarar eru enda best í stakk búnir til að taka upplýstar ákvarðanir um nám nemenda, sem sérfræðingar.
Þess utan hafi verið sýnt fram á að skólastarf þrífst betur þegar kennarar hafa öflugt faglegt sjálfræði. Stífar reglur, strangt eftirlit og mikil starfsskylda dregur úr starfsgleði, ýtir undir óánægju í starfi og eykur líkur á kulnun samkvæmt rannsóknum, útskýrði Guðrún.
Það eru þá ekki bara kennararnir sem þurfa faglegt sjálfræði í sínum störfum heldur þurfa skólarnir einnig að hafa sjálfræði og ákvörðunarvald, og þar með skólastjórnendurnir. Finna þarf jafnvægi til þess að mæta bæði ytri stöðlum og staðbundnum þörfum hvers skóla.
Kennarar hér á landi hafa almennt mikið sjálfræði í samanburði við kennara annarra landa, og skólastjórnendur virðast almennt virða þetta rými kennara hérlendis, segir Guðrún. Þó hafi kennarar og skólastjórnendur ekki nægt umboð hvað varðar inntak náms að hennar mati.
Guðrún flutti fyrirlestur sinn í streymi vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
„Draumsýnin er að við skólafólkið höfum forystu í menntakerfinu,“ sagði Guðrún. Hún vill meiri grasrótarstarfsemi innan stéttarinnar, hvetur kennara til að taka aukinn þátt í skólaþróunarmálum og faglegri og opinberri umræðu um kennarastarfið og kallar eftir því að kennarar skrifi sjálfir kennslubækurnar og komi að gerð námsefnis og framkvæmd rannsókna í auknum stíl. „Því hjá okkur er sérfræðiþekkingin,“ bendir hún á.
Þessi störf ætti þó ekki að vinna ofan á öll önnur störf, eins og svo oft er gerð krafa um. Til dæmis varðandi námsefnagerð þyrfti að tryggja kennurum nægt fjármagn, faglegan stuðning og rými – leysa þá tímabundið frá kennslustörfum – svo þeim sé gert kleift að sinna verkefninu almennilega. „Stöndum vörð um faglegt sjálfræði kennara, því þar liggur sérfræðiþekkingin,“ sagði Guðrún að lokum.
Virk þátttaka þinggesta
Í kjölfarið fóru fram líflegar og áhugaverðar pallborðsumræður þar sem Ólafur Páll, Elsa Eiríksdóttir, prófessor á menntavísindasviði HÍ, Simon Cramer Larsen, kennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla og fulltrúi kennara við pallborðið og Kristín Gísladóttir, fulltrúi skólastjórnenda og skólastjóri Uglukletts, sátu fyrir svörum áhugasamra þinggesta.
Þau fóru meðal annars yfir hlutverk kennarans, hvernig kennarinn getur sinnt fagmennsku sinni í ljósi þversagnarinnar sem Ólafur kom inn á og hvort setja ætti faglegu sjálfræði kennara mörk, og þá hvar og hvernig.
Eftir þingslit snæddu gestir á léttum veitingum og gafst þá tækifæri til að halda áfram umræðum sem sköpuðust á þinginu sín á milli.
„Það var ákaflega gaman að sjá þinggesti bæði í sal Kennarasambandsins, og í streymi. Erindi fyrirlesara voru virkilega fróðleg og skemmtileg og það skilaði sér í virkni þinggesta sem lögðu fram áhugaverðar, og á tíðum krefjandi, spurningar fyrir þátttakendur í pallborði. Það gladdi mig að sjá hve áhugasamir kennarar eru um efni þingsins; fagmennsku og gildi stéttarinnar,“ sagði Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, um framkvæmd þingsins.