Þurfum að brjótast út úr vítahring

Fréttir|1. apríl 2014

„Traust menntun hjálpar fólki að fóta sig í flóknum og síbreytilegum heimi auk þess að leggja grunn að atvinnulífi og velsæld borgaranna, sagði Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, í upphafi ávarps síns á þingi Kennarasambands Íslands, í dag.

Illugi sagði flesta sammála um að góð menntun veitti ungu fólki það veganesti sem best dygði. Hann sagði lagasetninguna um menntun kennara frá 2008 hafa verið stórt skref til að færa skólakerfið til nútímahorfs og bæta menntun kennara. Hann sagði ekki hafa tekist að veita því fé sem ætlað var til innleiðingar laganna. „Einnig hefur þess orðið vart að ekki ríkir nægilega mikið traust á milli kennara annars vegar og stjórnvalda hins vegar um innleiðinguna. Kennarar telja sig vanmetna í launum og virðingu. Stjórnvöld hafa þrýst á um breytingar og báðir aðilar telja sig stundum rekast á veggi skilningsleysis af hálfu hins. Úr þessum vítahring þurfum við að brjótast,“ sagði Illugi.

Þá minntist ráðherrann á hvítbókina sem hann sagði koma út á næstunni. Hann sagði að þar verði vakin athygli á tveimur meginviðfangsefnum; dalandi lesskilningi íslenskra drengja og hins vegar að slakri námsframvindu framhaldsskólanemenda. „Lagt verður til að unnið verði að tveimur meginmarkmiðum; annars vegar að 90 prósent grunnskólanemenda nái hið minnsta lágmarksviðmiðum í lestri samkvæmt mælingu PISA, í stað 79 prósent nú. Hins vegar að 60 prósent framhaldsskólanema ljúki námi á tilsettum tíma,“ sagði Illugi.

Ráðherra sagði árangur umbóta í menntakerfinu velta að stórum hluta á því að samstaða náist á milli kennara og stjórnvalda um markmið og leiðir. Hann sagðist hafa í hyggju að kalla til samráðs þá fjölmörgu aðila sem hag hafa af menntun til að ræða tillögur hvítbókarinnar og móta aðgerðir til úrbóta.

„Von mín er að kennarar taki virkan þátt í þeirri vinnu sem framundan er og okkur öðlist að ná samstöðu um að byggja hér upp menntakerfi sem veitir ungu fólki hér á landi bestu mögulegu tækifæri til að taka þátt í breytilegu samfélagi nútímans,“ sagði Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.