Þungar áhyggjur af áformum um sameiningu

Fréttir|27. maí 2015

Fundur stjórnar og samninganefndar Félags framhaldsskólakennara sem fram fór þriðjudaginn 26. maí síðastliðinn samþykkti ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af áformum um sameiningu framhaldsskóla í landinu.

„Hér er um að ræða meginbreytingu í mennta- og byggðapólitík í landinu án samráðs við fagaðila og án umfjöllunar löggjafans," segir orðrétt í ályktun stjórnar og samninganefndar.