Þróun og innleiðing spjallmennis í kennslu

Fríða Gylfadóttir og Tinna Ösp Arnardóttir, kennarar vði Fjölrautaskólann í Garðabæ, skrifa um rannsókn sem þær gerðu og fjallar í meginatriðum um hvernig best sé að nýta gervigreindartækni á uppbyggilegan hátt í kennslustofunni. Þær ákváðu að þróa sérsniðin spjallmenni. Rannsókn Tinnu Aspar og Fríðu var styrkt af Rannsóknasjóði KÍ.
Haustið 2024 vorum við, eins og margir kennarar, að velta fyrir okkur hvaða áhrif gervigreind myndi hafa á nám og kennslu. Nemendur okkar voru þegar farnir að nota ChatGPT ogönnur gervigreindartól í námi. Umræðan snerist oft um hvort ætti að banna tæknina eða takmarka notkun hennar.
Okkar upplifun var að gervigreindin væri komin til að vera og því fannst okkur mikilvægara að spyrja annarrar spurningar: Hvernig getum við nýtt tæknina á uppbyggilegan hátt í kennslu?
Hugmyndin um rafrænan aðstoðarkennara
Við ákváðum að þróa sérsniðin spjallmenni fyrir okkar eigin áfanga í ensku og viðskiptagreinum við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Markmiðið var ekki að búa til staðgengil fyrir kennarann heldur rafrænan aðstoðarkennara sem gæti stutt nemendur þegar þeir væru að vinna verkefni, bæði í kennslustundum og heima.
Fljótlega kom í ljós að sérsniðin spjallmenni höfðu ákveðna kosti umfram almenn gervigreindartól. Þau þekktu verkefnin, námsmatið og markmið áfangans og gátu því veitt markvissari stuðning en almenn spjallmenni.
Það tók þó tíma að þróa lausnirnar. Við prófuðum, breyttum, uppfærðum og fengum stöðugt endurgjöf frá nemendum. Rannsóknin varð því ekki aðeins rannsókn á nemendum heldur einnig á okkar eigin kennsluháttum.
Hvað sögu nemendur?
Alls tóku 78 nemendur þátt í rannsókninni. Niðurstöðurnar komu okkur að mörgu leyti á óvart. Um 80% nemenda töldu að aðstoðarkennarinn hjálpaði þeim að skilja námsefnið betur og 72% vildu sjá slíkar lausnir í fleiri áföngum. Þá töldu nær 79% að spjallmennið bætti kennslu almennt.
Það sem vakti þó athygli okkar var að tæplega tveir af hverjum þremur nemendum kusu sérsniðna aðstoðarkennarann frekar en almennt spjallmenni eins og ChatGPT. Það bendir til þess að nemendur treysti frekar sérsniðnu spjallmenni búnu til af kennara sem tengist beint þeirra eigin námi og verkefnum.
Nemendur nefndu einnig ýmsa kosti svo sem skjót svör, aðgengi að aðstoð utan kennslustunda og aukið öryggi við verkefnavinnu. Um leið bentu þeir á mikilvægar áskoranir, meðal annars að svör væru ekki alltaf rétt og að hætta gæti verið á að treysta tækninni of mikið. Hér að neðan á mynd 1 má sjá helstu niðurstöður rannsóknarinnar. Um 80% nemenda töldu að aðstoðarkennarinn hjálpaði þeim að skilja námsefnið betur, 72% vildu sjá slíka lausn í fleiri áföngum og 79% töldu að hún bætti kennslu almennt.

Mynd Hlutfall nemenda sem voru sammála eða mjög sammála.
Við sáum breytingar í kennslustofunni
Eftir því sem leið á rannsóknina fórum við að taka eftir ákveðinni breytingu hjá nemendum. Eitt af því sem kom okkur mest á óvart var hversu hratt margir nemendur unnu verkefnin sín þegar þeir höfðu aðgang að aðstoðarkennaranum. Verkefni sem áður gátu tekið heila kennslustund voru oft kláruð mun fyrr og nemendur voru fljótari að komast af stað.
Við nefnum sérstaklega í skýrslunni kennslustundir þar sem nemendur voru að vinna að stærri verkefnum. Áður höfðu slíkir tímar oft einkennst af bið eftir aðstoð kennara við uppsetningu verkefna, heimildaskráningu eða næstu skref í vinnunni. Nú fengu nemendur svör við mörgum slíkum spurningum strax frá aðstoðarkennaranum. Það gaf okkur kennurunum meira svigrúm til að ræða við nemendur um innihald verkefnanna, rökhugsun þeirra og skilning á námsefninu.
Þessi reynsla minnti okkur á að gervigreindin snýst ekki um að spara tíma heldur um að nýta tímann öðruvísi. Þegar einfaldari spurningum er svarað hratt skapast meira rými fyrir það sem skiptir mestu máli í kennslu: samræður, leiðsögn og nám.

Við upplifðum ekki að gervigreindin kæmi í stað kennarans. Þvert á móti jókst þörfin fyrir leiðsögn, samræður og gagnrýna hugsun.
Það sem við lærðum sem kennarar
Eitt af því sem stóð sterkast upp úr var að hlutverk kennarans er að breytast. Við upplifðum ekki að gervigreindin kæmi í stað kennarans. Þvert á móti jókst þörfin fyrir leiðsögn, samræður og gagnrýna hugsun. Nemendur þurftu áfram á kennaranum að halda til að túlka upplýsingar, meta áreiðanleika svara og tengja þekkingu við samhengi.
Við sáum einnig að nemendur kláruðu verkefni hraðar en áður. Það kallaði á meiri fjölbreytni í verkefnum og breyttan undirbúning. Smám saman fórum við að velta fyrir okkur hvort hefðbundið námsmat væri að mæta þeim veruleika sem gervigreind hefur skapað. Þar teljum við að munnlegt námsmat og verkefni sem byggja á rökhugsun, ígrundun og umræðu verði sífellt mikilvægari.
Annað sem rannsóknin sýndi okkur var mikilvægi sérsniðinna lausna. Nemendur virðast meta að spjallmennið þekki verkefnin þeirra, matsviðmið og námsmarkmið. Það staðfestir að gervigreind í menntun snýst ekki eingöngu um tæknina sjálfa heldur um hvernig hún er samþætt kennslufræðilegum markmiðum.
Gervigreind í kennslu, þetta er bara byrjunin
Á rannsóknartímanum fengum við tækifæri til að taka þátt í landsverkefni á vegum Menntamálastofnunar, Kennarasambands Íslands og Anthropic um notkun gervigreindar í kennslu. Sú reynsla víkkaði sjóndeildarhring okkar enn frekar og staðfesti að kennarar um allt land standa frammi fyrir svipuðum spurningum og áskorunum.
Þess vegna teljum við mikilvægt að umræðan snúist ekki um hvort nota eigi gervigreind í skólum heldur hvernig. Nemendur eru þegar farnir að nota tæknina. Verkefni okkar er að kenna þeim að nýta hana af ábyrgð, gagnrýni og fagmennsku.
Þegar við lítum til baka finnst okkur við ekki vera að ljúka verkefni heldur hefja nýtt tímabil í kennslu. Gervigreindin er hvorki heimsendir né töfralausn. Hún er verkfæri sem kallar á nýja hugsun um nám, kennslu og námsmat. Reynsla okkar sýnir að þegar tæknin er nýtt með skýrum kennslufræðilegum markmiðum getur hún orðið öflug viðbót við kennslu. Á sama tíma þarf að efla gagnrýna hugsun, gervigreindarlæsi og faglega umræðu innan skólasamfélagsins.
Spurningin er ekki hvort kennarar eigi að nota gervigreind í kennslu heldur hvernig. Þar liggja að okkar mati stærstu tækifærin fyrir íslenskt skólastarf á komandi árum.