Þrjú bjóða sig fram til formanns FG

Mjöll Matthíasdóttir, Pétur Vilberg Georgsson og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir bjóða sig fram til formennsku í Félagi grunnskólakennara.
Þrjú bjóða sig fram til formennsku í Félagi grunnskólakennara. Þau eru Mjöll Matthíasdóttir, kennari við Þingeyjarskóla, Pétur Vilberg Georgsson, kennari við Brekkubæjarskóla, og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara.
Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna í Félagi grunnskólakennara fer fram dagana 2. til 7. maí næstkomandi.
Kjörtímabil formanns verður 2022 til 2026. Kosið verður til stjórnar FG og í önnur trúnaðarstörf á vegum félagsins í lok maí. Framboðum í þau embætti þarf að skila fyrir 18. maí næstkomandi.
Frétt um auglýsingu kjörnefndar FG.
Framboðsfundur og kynning frambjóðenda
Frambjóðendurnir þrír, Mjöll, Pétur Vilberg og Þorgerður Laufey, koma saman á framboðsfundi þriðjudagskvöldið 26. apríl. Fundurinn fer fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins við Borgartún, en honum verður einnig streymt á netinu.
Fundarstjóri verður Þórhildur Þorkelsdóttir. Fundurinn hefst klukkan 20. Slóð á fundinn verður kynnt þegar nær dregur.
Hægt er að kynna sér áherslur frambjóðenda á kynningarsíðu um formannskjör.