Þrjú aðildarfélög KÍ semja

Félag leikskólakennara, Skólastjórafélag Íslands og Félag stjórnenda leikskóla skrifuðu undir nýja kjarasamninga í dag.
Þrjú aðildarfélög Kennarasambands Íslands skrifuðu undir kjarasamninga við Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga í nótt og í morgun.
Félag leikskólakennara hefur skrifað undir samning sem gildir til 31. desember 2021. Í samningnum er sérstök áhersla lögð á faglegt starf og undirbúning þess. Félag stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélag Íslands hafa skrifað undir jafnlanga samninga sem fela m.a. í sér samræmingu á kjaramálum félaganna og nýtt mat á starfsreynslu.
Samningarnir verða kynntir félagsmönnum ofangreindra félaga á næstu dögum og atkvæðagreiðsla um gerða samninga fer fram 4. - 7. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
Félag grunnskólakennara og Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum endurnýjuðu viðræðuáætlanir sínar og taka upp viðræður að loknu sumarfríi.