Þrjár nýjar íbúðir við Borgartún komnar í útleigu

Fréttir|21. júní 2024

Orlofssjóður KÍ hefur opnað fyrir bókanir í þremur nýjum íbúðum við Borgartún 24A. Góð viðbót við framboðið í höfuðborginni, segir framkvæmdastjóri Orlofssjóðs.

Íbúðirnar í Borgartúni 24A, sem Orlofssjóður hefur tekið á leigu, eru nú klárar til útleigu og var opnað fyrir bókanir rétt í þessu. Hægt verður að leigja þær frá og með miðri næstu viku og verður fyrirkomulag með sama hætti og í Vörðuleiti. 

Íbúðirnar eru þrjár, tvær eru með einu svefnherbergi og geta hýst allt að fjóra ef svefnsófi í stofu eru nýttur. Þriðja íbúðin er með tvö svefnherbergi auk svefnsófa í stofu. 

Borgartún 24A er nýbyggt og glæsilegt fjölbýlishús í hjarta Reykjavíkur. Bílastæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðunum og er innangengt í sameign að íbúðunum. Þá er sameiginlegur garður í miðju hússins og tvennar þaksvalir tilheyra sameign og eru ætlaðar öllum til að njóta útivistar. Þaksvalir er að finna á fjórðu og sjöttu hæð en enn á eftir að koma fyrir útihúsgögnum. 

Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs, segir stjórn OKÍ vona að þessi viðbót við framboð í Reykjavík eigi eftir að nýtast félögum KÍ vel. Hún segir að miðað við mjög góða nýtingu í Vörðuleiti megi ætla að nýju íbúðunum verði tekið fagnandi. 

Hlekkur á Frímann