Þriggja ára stúdentspróf mögulegt

Fréttir|11. desember 2014

„Besta leiðin er að skólarnir ákveði sjálfir hvort þeir hafi tök á að bjóða upp á námsbrautir með þriggja ára stúdentsprófi. Þeir sem bjóða upp á það verða væntanlega eftirsóttari hjá þeim nemendum sem vilja hraða sér í gegnum framhaldsskólann.“ skrifar Ívar Örn Reynisson, framhaldsskólakennari við Menntaskóla Borgarfjarðar, í nýjum Vikupósti á vefsíðu FF. 

Ívar Örn segir að þriggja ára nám til stúdentsprófs sé við lýði í Menntaskóla Borgarfjarðar og vel sé látið af því. Hins vegar er að sögn Ívars Arnar lítið vit í þvinga fram styttingu framhaldsskólans í óþökk margra þeirra sem þar starfa og án þess að gert sé ráð fyrir kerfisbreytingum. Kynna þurfi betur það sem vel er gert í þriggja ára námi og samþjöppun á námsbrautum er ekki leiðin. Þá segir Ívar Örn að mikilvægt sé að horfa á málin frá sjónhorni nemenda. „Það er óvíst að þriggja ára nám til stúdentsprófs minnki brottfall og hefur nokkuð verið ritað um það. Símat og leiðsagnarmat á kennslutíma skapar þörf fyrir aukna verkefnavinnu og minna vægi prófa sem þýðir að nemendur þurfa að leggja meira og jafnar á sig en þar sem próf skipa stóran sess í námsmati," segir meðal annars í Vikupósti Ívars Arnars