Þrettán bjóða sig fram í trúnaðarstörf FSL

Þrettán framboð hafa borist í trúnaðarstörf Félags stjórnenda leikskóla. Kosið er í stjórn í allsherjaratkvæðagreiðslu. Kosið er í kjörstjórn, samninganefnd og framboðsnefnd á aðalfundi. Formaður var sjálfkjörinn.
Þrettán bjóða sig fram í trúnaðarstörf fyrir Félag stjórnenda leikskóla (FSL) fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Framboðsfrestur til formanns rann út á hádegi, fimmtudaginn 8. janúar og var Sigurður Sigurjónsson sjálfkjörinn í embættið. Framboðsfrestur í stjórn félagsins rann út á hádegi í dag, fimmtudaginn 15. febrúar. Áfram er hægt að bjóða sig fram í framboðsnefnd, kjörstjórn og samninganefnd.
Kosið er í stjórn Félags stjórnenda leikskóla í rafrænni allsherjaratkvæðagreiðslu sem áætluð er dagana 9. til 11. febrúar 2026 og verður kynnt nánar síðar.
Kosið er í önnur trúnaðarstörf á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 24. ágúst 2026. Ný stjórn tekur við að loknum aðalfundi.
Stjórn
Stjórn FSL skipa, auk formanns félagsins, fjórir aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar. Ellefu framboð bárust. Í framboði eru (í stafrófsröð):
- Anna Björk Marteinsdóttir
- Elín Friðriksdóttir
- Halla Ösp Hallsdóttir
- Halldóra Guðmundsdóttir
- Jóna Rut Jónsdóttir
- Jónína Einarsdóttir
- Lísa Lotta Björnsdóttir
- Margrét Gísladóttir
- María Petrína Berg
- Marthen Elvar Veigarsson Olsen
- Nichole Leigh Mosty
Hægt verður að kynna sér frambjóðendur betur á kosningasíðu FSL innan skamms.
Önnur trúnaðarstörf
Hægt er að bjóða sig fram framboðsnefnd, kjörstjórn og samninganefnd FSL fram að kosningu sem fer fram á aðalfundi félagsins 24. ágúst 2026.
Kjörstjórn er skipuð þremur aðalfulltrúum og þremur til vara. Auður Ösp Guðjónsdóttir hefur boðið sig fram í kjörstjórn.
Framboðsnefnd er skipuð þremur aðalfulltrúum og tveimur til vara.
Samninganefnd er skipuð þremur aðalfulltrúum og tveimur til vara. Fulltrúarnir fimm mynda samninganefnd FSL ásamt stjórn félagsins.