Þremur skólastigum fléttað saman
Stórutjarnaskóli er allt í senn grunn-, leik- og tónlistarskóli. Kennari við skólann segir fyrirkomulagið ganga vel þó það sé ekki hafið yfir gagnrýni.
Fámennir skólar eru víða í byggðum landsins og er rekstargrundvöllur þeirra oft erfiður. Það hefur leitt til þess að skólum fækkar og börn eru keyrð langar vegalengdir til skóla dag hvern. Fyrir fimmtán árum var ákveðið að gera breytingar á Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði til að tryggja áframhaldandi skólastarf en þá voru leik-, grunn- og tónlistarskóli sameinaðir undir einum hatti. Skólinn er sá fyrsti sem rekinn er með þessu sniði hér á landi en ástæða þess að ákveðið var að láta reyna á þetta rekstrarform var eins og áður sagði fámenni. Með þessu var gerð tilraun til að styrkja stöðu skólans í sveitarfélaginu enda áttuðu sveitarstjórnarmenn sig á að þar sem ekki er rekinn grunnskóli eru litlar líkur á að rekinn sé leik- eða tónlistarskóli. Hanna Berglind Jónsdóttir, leikskólakennara og stjórnarmaður í Félagi leikskólakennara, starfar við Stórutjarnaskóla. Skólavarðan fékk Hönnu Berglindi til að setja saman stuttan pistil og fara yfir sína upplifun af skólanum og rekstrarforminu, sem er af mörgum ástæðum umdeilt. Við gefum Hönnu Berglindi orðið:
Áhugi og vilji til samstarfs
„Árið 1995 skrifaði Ólafur Arngrímsson, þá nýráðinn skólastjóri við Stórutjarnaskóla, ásamt Hafsteini Karlssyni grein um sameiningu skólastofnana í Vegprest, rit Samtaka fámennra skóla. Þar veltu þeir upp möguleikanum á samrekstri leik-, grunn- og tónlistarskóla í tengslum við að rekstur grunnskólans færðist yfir til sveitarfélaganna 1996. Fyrir ráku sveitarfélögin leikskólana og tónlistarskólana. Þetta þótti framúrstefnuleg hugmynd og mörgum þótti hún eflaust slæm. Þetta rekstarform braut þáverandi lög um leikskóla nr. 78/1994, þar sem segir í 12. gr.: „Við hvern leikskóla skal vera leikskólastjóri sem stjórnar starfi leikskólans … Leikskólastjóri … skal hafa menntun leikskólakennara. Í lögum um leikskóla 90/2008 er frávik frá þessum lögum í 28. gr. um samrekstur skóla: Sveitarfélögum er heimilt að reka saman leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra … Skal stjórnandi slíkrar stofnunar hafa leyfisbréf til kennslu á leik- og/eða grunnskólastigi“. Þessu ákvæði var breytt í lögunum vegna þeirrar góðu reynslu sem var af rekstarformi í Stórutjarnaskóla, enda höfðu fleiri sveitarfélög áhuga á að taka það upp.
Grunnforsenda þess að leikskóladeildin yrði stofnuð var að ráða leikskólakennara til starfa. Einnig var lögð áhersla á að húsnæði og starfsfólk skyldi samnýtt eins og kostur væri hverju sinni. Sú staðreynd að starfsemin fer öll fram í sama húsnæði skiptir miklu máli og auðveldar eðlilega alla vinnu og framkvæmd. Mikilvægur þáttur í velgengni þessa samstarfs er sá að leikskólakennarinn sem ráðinn var til starfa hafði margra ára reynslu af starfi í grunnskóla og þekkti því til starfsumhverfisins og möguleika á samstarfi. Boðað var til starfsmannafundar þar sem kanna átti áhuga grunnskólakennaranna á samstarfi og kennslu við leikskóladeildina. Áhuginn var mikill og hefur þróast gott samstarf á þessum árum. Fjöldi fagmenntaðra starfsmanna hefur því alltaf komið að starfi leikskóladeildarinnar. Hvernig samstarfinu er háttað hverju sinni byggir þó eðlilega á fjölda barna í árgangi og er það því ekki fastmótað, þrátt fyrir að ýmsar hefðir leggi grunninn að því.
Greinarhöfundur, Hanna Berglind í samveru með nemendum leikskóladeildarinnar
Hagræðing og betri nýting
Í námskrá Stórutjarnaskóla segir um samþættingu skólakerfanna:
Samþætting leik-, grunn- og tónlistarskólastigs í Stórutjarnaskóla er mikilvægur hluti uppeldis- og kennslufræði. Einnig er hún talin mikilvæg til að auka tónlistarkennslu og listfræðslu í menntun einstaklinga í nútíma samfélagi ... Samþætting skólanna er líka viðleitni til að bregðast við fólksfækkun á skólasvæðinu með því að hagræða í skólarekstrinum og ná fram betri nýtingu á húsnæði, aðstöðu og starfsfólki.
Fjölbreytilegar leiðir í kennslu eru nauðsynlegar svo þörfum og hæfileikum barnanna verði mætt sem best. Með þetta að leiðarljósi leitast starfsfólk Stórutjarnaskóla við að flétta saman þessi þrjú skólastig svo samfella náist í námi barnanna.
Í námskrá leikskóladeildarinnar segir um samstarf skólakerfanna:
Til að stuðla að góðum tengslum leik-, grunn-, og tónlistarskóla er reynt að nýta þá aðstöðu og þann mannauð sem Stórutjarnaskóli hefur yfir að ráða. Nemendur læra að fara eftir þeim reglum sem gilda í skólanum almennt og þeir þjálfast í samskiptum við aðra á hinum ýmsu aldursstigum. Nemendur leikskólans kynnast því starfi sem bíður þeirra í grunnskóla og þeir læra að líta á Stórutjarnaskóla sem skólann sinn. Nemendur grunnskólans fá að sjálfsögðu einnig tækifæri til að halda tengslum við leikskólann.
Hefð er fyrir því að fimm ára börnin sæki ákveðna tíma með 1. og 2. bekk, auk þess hópastarfs sem er í leikskólanum. Þetta eru íþróttir, sundaðlögun, og útiskóli ásamt tónmennt, tölvufræði, heimilisfræði, smíðum, íslensku og stærðfræði eins og það heitir í stundaskrá grunnskólans. Yngri börnin eru í tónmennt og íþróttum. Ein af valgreinum 9. og 10. bekkjar er starf í leikskóla, en þar kynnast nemendur og taka þátt í starfi leikskólans. Þess eru dæmi að fyrrum valgreinanemendur séu leikskólakennarar í dag.
Hótel á sumrin
Allir borða á sama tíma í matsal skólans, bæði börn og kennarar. Opnunartími er sá sami á báðum skólastigunum, bæði hvað varðar skólaárið og daglega viðveru. Er það m.a. vegna vegalengda á skólasvæðinu og þess að sum barnanna ferðast með skólabílum. Skólinn er nýttur undir rekstur Hótel Eddu á sumrin, og nú hefur tekist að koma leikskóladeildinni þannig fyrir í húsnæðinu að í sumar verður í fyrsta skipti hægt að hafa opið.
Skólinn starfar undir merki Grænfánans. Í grænfánastefnunni er m.a. lögð rík áhersla á lýðheilsu í víðasta skilningi. Því hefur Stórutjarnaskóli gengið formlega í raðir heilsueflandi skóla, og er því með stefnumótun sem m.a. birtist í matseðlum mötuneytisins og starfi umhverfis- og lýðheilsunefndar skólans. Í henni sitja fulltrúar allra starfshópa í skólanum, fulltrúar nemenda (þ.m.t. fulltrúi úr leikskóla) og foreldra auk sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Þá hefur skólinn sett sér umhverfis- og lýðheilsustefnu og sáttmála. Stórutjarnaskóli hefur undanfarin fimm ár haldið umhverfisþing sem eru öllum opin.
Auðvitað er þetta samstarf ekki hafið yfir gagnrýni enda í stanslausri endurskoðun og mati. Horfa þarf til samsetningar barnahópsins, bæði í leikskóladeildinni og eins í 1. og 2. bekk. En þegar fjöldi nemenda er ekki meiri en hann er, með alla þessa fagmenn starfandi er möguleikarnir margir og því mikilvægt að starfa með opnum huga og vera vakandi fyrir nýjum leiðum og nálgunum.
Á þessum 15 árum hefur samstarf og samvinna skólastiganna vaxið og dafnað í Stórutjarnaskóla. Það er þó engan veginn sjálfgefið að vel gangi að reka þrjár skólagerðir undir sama þaki þar sem kennarar vinna samkvæmt þremur ólíkum kjarasamningum. Áhugi og vilji starfsfólks til samrekstrar og samstarfs skiptir þar höfuðmáli, að hafa áhuga á að vinna þvert á skólastigin og að líta á skólann sem einn skóla.
Greinin birtist í Skólavörðunni, 4. tölublaði 2015. Skólavarðan er aðgengileg á pdf-formi en einnig er handhægt að lesa hana í Skólavörðuappinu sem fæst í App Store og á Google Play.