Þrautseigja, lausnamiðun og sköpun

Spjaldtölvuvæðingin hefur verið hröð síðustu árin, ekki síst í skólastarfi. Kennarar þurfa að fylgjast gríðarvel með og vera í stakk búnir að nota þessi tæki. En eru þeir það?
„Tölvur eiga að vera hluti af allri kennslu. Börn og unglingar þurfa að læra að nota þessi tæki og það er okkar hlutverk að leiðbeina þeim og benda þeim líka á hvaða áhrif tæknin getur haft á þau sjálf,“ segir Anna María Þorkelsdóttir, kennsluráðgjafi í Hörðuvallaskóla.
Anna María hóf störf í Hörðuvallaskóla síðasta haust og hennar hlutverk er að innleiða nýja kennsluhætti, aðstoða kennara við hæfniviðmið, auka þematengd verkefni og samvinnuverkefni og síðast en ekki síst vinna að því að nýta tæknina enn betur í allri kennslu.
Nemendur í 5. til 10. bekk Hörðuvallaskóla, eins og aðrir nemendur í Kópavogi, hafa góðan aðgang að tölvum og allir fá afhentan Ipad til einkanota. Þá á skólinn líka nokkrar borðtölvur og nokkra tugi Chromebook-véla sem eru í mikilli notkun.
„Við gerum mikið af því að bjóða nemendum að skila verkefnum eins og þau vilja. Ágætt dæmi um þetta er nemandi sem bjó til tölvuleik í forritun hér og skömmu síðar var lagt fyrir verkefni í dönsku sem tengdist tölvuleikjum. Nemandinn gerði sér lítið fyrir og talsetti tölvuleikinn á dönsku og setti líka danskan texta undir. Samþætting af þessu tagi er af hinu góða,“ segir Anna María.
Við gerum mikið af því að bjóða nemendum að skila verkefnum eins og þau vilja.
Meðal valgreina á unglingastigi má nefna forritun, kvikmyndagerð og Makerspace. „Við vorum heppin með kennara í forritun en hann er lærður leikjahönnuður og hefur kennt nemendum að forrita í Unity-forritinu. Þetta er vinsæl valgrein en ég tel afar mikilvægt að allir krakkar læri undirstöðuatriðin í forritun. Við tökum líka alltaf þátt í forritunarvikunni „Hour of Code“ en þá hitta eldri nemendur yngri nemendur og í sameiningu vinna þau verkefni í forritun.“
Færni til framtíðar
UT-nám er ekki sérstakt fag heldur eiga tölvur að vera hluti af allri kennslu. „Þannig getum við þjálfað færni sem nýtist klárlega til framtíðar. Hlutverk okkar kennara er að leiðbeina nemendum og benda á aðferðir sem þeir geta nýtt sér í framtíðinni og þær eru margar rafrænar. Dæmi um þetta gæti verið nemandi sem gerir Toontastic kynningu í íslensku; hann setur hana inn á Google Classroom-síðuna fyrir UT-námið og er þá búin að uppfylla hæfni sem er ætlast til þar. Þetta snýst ekki endilega um hversu færir nemendur eru í notkuninni heldur frekar að þeir viti hvaða möguleikar eru í boði og hafi kynnt sér þá vel. Það er mín skoðun að ef nemandi sem hefur nýtt sér fjölbreyttar leiðir við að leysa verkefni og þekkir hvaða tæki og tól geta gagnast í náminu og lífinu almenn hafi náð nauðsynlegri hæfni í upplýsingatækni.“
Anna María hittir hóp nemenda í viku hverri til að ræða hæfniviðmiðin. „Við ræðum margt á þessum fundum en markmiðið er að fá nemendur til að koma með hugmyndir um hvernig þeir vilji uppfylla hæfniviðmiðin. Þeir leggja fram tillögur að verkefnum og bentu til dæmis á að í samfélagsfræði væri gert ráð fyrir umræðum og rökræðu. Þeir sögðust ekki hafa orðið vör við þetta í kennslustundum en þetta vildu þeir vinna með, enda væri það hæfni sem þeir þyrftu að byggja upp fyrir framtíðina.“
Anna María segir mikilvægt að kenna krökkum að temja sér skipuleg og fagleg vinnubrögð – það sé góður grunnur fyrir framtíðina. „Við erum að vinna með hæfni 21. aldar og hún snýst meðal annars um þrautseigju, lausnamiðun og sköpun. Þetta eru þættir sem munu skipta hvað mestu máli í framtíðinni. Sá sem klárar flókið forritunarverkefni sýnir þrautseigju svo dæmi sé tekið. Tæknin er líka ekki að fara neitt og börn þurfa að læra að nota þessi tæki með uppbyggilegum og góðum hætti,“ segir Anna María og bætir við krakkarnir sjálfir séu meðvitaðir um áhrif tækjanna og velti fyrir sér tölvufíkn.
Möguleikarnir endalausir
„Við þurfum alltaf að halda á lofti umræðunni um hvaða áhrif tæknin og samfélagsmiðlar geta haft á líf okkar – og spyrja okkur hvort tæknin sé til bóta eða hvort hún hefti okkur á einhverjum sviðum, í námi til dæmis. Þetta snýst um forvörn og er kannski ekkert ósvipað og var talað um tóbaksreykingar árum saman – það hafði þau áhrif að mjög góður árangur náðist í að halda unglingum reyklausum.“
Anna María segir að á meðan börn séu frædd um tölvutæknina þá sé ekki ástæða til að banna síma í skólum. „Ég er ekki hlynnt slíku banni. Það er nefnilega þannig að ef við leggjum fram áhugaverð verkefni, í hvaða námsgrein sem er, þá vinna krakkarnir vel og þau eru ekki að nota tölvur eða síma í annað á meðan,“ segir Anna María og bætir við að heilt yfir gangi þetta vel en auðvitað hafi líka komið upp vandamál sem tengist tölvunotkun. „Málið er að taka á slíku strax, ræða við nemandann og reyna að finna lausn.“
Anna María segir möguleikana endalausa þegar snjalltæknin er annars vegar. Hún segir þó að betra væri ef fleiri öpp væru til á íslensku. „Það má auðvitað gera mun betur í þessu og einkum finnst mér vanta fleiri og fjölbreyttari verkefni sem tengjast lesskilningi. Ég hef heyrt nemendur á unglingastigi tala um að þeir vilji ná meiri árangri þar en því miður er ekki margt í boði fyrir unglingana. Þó vil ég segja að það er margt gott að finna á vef Menntamálastofnunar – til dæmis Viskuveituna sem er eldgamalt námsefni en kennir með ágætum hætti hvernig á að nota bókasafn og tölvur sem hluta af hugmynd um margmiðlunarver.“
Ég hef heyrt nemendur á unglingastigi tala um að þeir vilji ná meiri árangri þar en því miður er ekki margt í boði fyrir unglingana.
Spjaldtölvuvæðingin hefur verið hröð síðustu árin, ekki síst í skólastarfi. Kennarar þurfa að fylgjast gríðarvel með og vera í stakk búnir að nota þessi tæki. En eru þeir það? „Já, engin spurning. Þeim fer fækkandi sem eru óöruggir en að sjálfsögðu þurfa þeir að njóta stuðnings við innleiðingu tækni og í framhaldinu. Við búum afar vel hér hvað þetta varðar; erum með tölvuumsjónarmann innan skólans og svo fáum við spjaldtölvuteymi Kópavogs reglulega í heimsókn. Stuðningur þarf að vera markviss og eins þarf skólinn að hafa skýr markmið í þessum efnum. Við fengum til dæmis lista yfir þau öpp sem spjaldtölvuteyminu fannst að allir kennarar ættu að kunna á. Listinn var sendur á kennara og þeir merktu við þau forrit sem þeir þekktu og fengu svo kennslustund í hinum.“
Anna María er sjálf dugleg að fylgast með þróuninni. „Já, ég er á kafi í þessu og reyni að deila öllu sem mér þykir markvert á blogginu mínu eða á Twitter. Svo eru kennarar og aðrir líka duglegir að segja mér frá forritum og öðru sem þeir rekast á. Þannig hjálpumst við að í þessu.“