Þrautseigja, forvitni og góð félagsleg tengsl

Frammistaða íslenskra nemenda í PISA 2025 var undir meðaltali OECD-ríkja í stærðfræðilæsi, lesskilningi og vísindum – og árangurinn var lakari en í síðustu mælingu PISA 2022. Íslenskir nemendur staðsetja sig hins vegar meðal efstu þjóða er kemur að þrautseigju og sterkum félagslegum tengslum.
iðurstöður PISA 2025 voru kynntar á heimsvísu í dag. Könnunin mælir hæfni 15 ára nemenda á þremur sviðum; lesskilningi, stærðfræðilæsi og vísindum auk þess sem félagslegir þættir eru mældir.
Frammistaða íslenskra nemenda í kjaragreinunum þremur, lesskilningi, stærðfræði og vísindum, fór niður á við miðað við síðustu PISA-könnun frá árinu 2022. Rétt rúmur helmingur nemenda, eða 56 prósent, bjuggu yfir grunnhæfni í lesskilningi og 62 prósent í stærðfræðilæsi og vísindum. Árangurinn var undir meðaltali OECD og einnig jafnaldra á hinum Norðurlöndunum. Þá var þessi frammistaða fjórum prósentustigum lægri í lesskilningi og stærðfræði en árið 2022 en stóð í stað í vísindum. Nemendur á hinum Norðurlöndunum féllu heilt yfir meira nú en íslensku nemendurnir.
Þessi þróun hér á landi er sambærileg við þróun í löndum OECD að jafnaði en þess má geta að árangur íslenskra nemenda dalaði meira í PISA-könnuninni 2022.
Stelpur skora hærra í lesskilningi en 62 prósent þeirra búa yfir grunnhæfni en aðeins 50 prósent stráka. Þá standa nemendur með erlendan bakgrunn ekki vel að vígi en aðeins 28 prósent þeirra ná grunnhæfni í lesskilningi.
Styrkur skólakerfisins
Þrautseigja einkennir íslenska nemendur og í þessum flokki er Ísland meðal efstu þjóða. Félagslegir þættir eru skoðaðir í PISA-könnuninni; svo sem félagsleg tengsl, sjálfsstjórn í námi, markmiðasetning, stuðningur kennara, forvitni og einelti.
Almennur áhugi á námi stendur í stað hér á landi en hann hefur dregist saman í flestum þátttökuríkjunum. Þá skara íslenskir nemendur fram úr er kemur að forvitni og markmiðasetningu. Ánægjulegt er einnig að sjá að einelti mælist mjög lítið hér á landi.
„Það gladdi okkur að við virðumst vera að ná ákveðnum sessi þegar snýr að því hvernig börnunum okkar líður í skólanum og hvaða traust þau bera til skólans," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í hádegisfréttum Bylgjunnar. Magnús vísaði þarna til þess að niðurstöður PISA gefa til kynna að nemendur fái almennt meiri aðstoð frá kennurum sínum en að meðaltali í öðrum löndum OECD.
Mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland, efndi til blaðamannafundar í morgun þar sem hún ræddi um niðurstöður PISA frá ýmsum sjónarhornum.
„Það má segja að við séum með rauða spjaldið, þegar kemur að námsárangri barnanna okkar í þeim mælikvörðum sem PISA felur í sér. Verkefnið er ekki að endurbyggja menntakerfið frá grunni heldur ætlum við að nýta þá styrkleika sem eru til staðar,“ sagði ráðherra meðal annars á blaðamannafundinum.
Hún sagðist finna vilja í samfélaginu til að snúa skútunni við en til þess að það megi verða þurfi allir að taka höndum saman; auka þurfi stuðning við kennara, stórefla námsgagnagerð og móta stefnu til framtíðar.
„Við í Kennarasambandinu höfum verið að kalla eftir samfélagslegu samtali og við treystum á það og mér fannst margt í hennar orðalagi í dag gefa væntingar um að við séum í alvörunni að horfa heildstætt á verkefnið“
Kallar eftir samfélagslegu samtali
Magnús Þór tók undir margt í máli ráðherra. „Það var margt í máli ráðherra sem gefur okkur vonir og væntingar um að það sé raunverulegur áhugi stjórnmálanna til þess að stíga fast á bensíngjöfina og koma með aðgerðir til þess að bæta ástandið," sagði Magnús Þór og bætti við að hann teldi ráðherra hafa slegið góðan tón á fundinum.
„Við í Kennarasambandinu höfum verið að kalla eftir samfélagslegu samtali og við treystum á það og mér fannst margt í hennar orðalagi í dag gefa væntingar um að við séum í alvörunni að horfa heildstætt á verkefnið,“ sagði Magnús Þór Jónsson.