Þorgerður Laufey Diðriksdóttir er nýr formaður Félags grunnskólakennara
Fréttir|22. janúar 2018

Úrslit liggja fyrir í formannskjöri Félags grunnskólakennara.
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir hefur verið kjörin formaður Félags grunnskólakennara. Fimm voru í framboði til formanns FG og féllu atkvæði þannig:
- Hjördís Albertsdóttir hlaut 526 atkvæði eða 21,5%
- Kjartan Ólafsson hlaut 123 atkvæði eða 5,0%
- Kristján Arnar Ingason hlaut 73 atkvæði eða 3,0%
- Rósa Ingvarsdóttir hlaut 502 atkvæði eða 20,6%
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir hlaut 1.110 atkvæði eða 45,5%.
- Auðir seðlar voru 107 eða 4,4%.
Á kjörskrá voru 4.833 og greiddu 2.441 atkvæði eða 50,5%. Atkvæðagreiðslan var rafræn, hófst kl. 9.00 miðvikudaginn 17. janúar og lauk kl. 14.00 mánudaginn 22. janúar 2018.
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir tekur við embætti formanns FG af Ólafi Loftssyni á aðalfundi Félags grunnskólakennara sem fram fer í Borgarnesi dagana 17. og 18. maí næstkomandi.