Þorgerður Katrín: Árétting um launakjör kennara

Frambjóðandi Viðreisnar sendi frá sér yfirlýsingu að loknum fundi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, frambjóðandi Viðreisnar, núverandi atvinnu- og nýsköpunarráðherra og fyrrverandi menntamálaráðherra, sendi í morgun frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Á góðum fundi um menntamál sem haldinn var á vegum Kennarasambandsins var spurt um lágmarkslaun kennara. Taldi ég þetta vera nokkurs konar gestaþraut- að vita hvort pallborðið vissi raunverulega hversu lág grunnlaun kennara eru. Ég var bara ansi glöð með sjálfa mig þar sem ég var nálægt rauntölunni eins og hún er í dag. Að ég hefði ekki verið rekin á gat á fundinum um stöðuna. Eftir á hef ég orðið þess áskynja að spurningin var hinsvegar hversu há laun kennara ættu að vera. Það er auðvitað allt önnur spurning. Finnst mér leitt að hafa valdið ergelsi á meðal kennara en þessu er einfaldlega svona varið. Ég hef reyndar svarað á fundum, bæði í þessari baráttu sem í fyrra hver laun kennara ættu að vera, - og hefur svar mitt verið 650-700 þúsund krónur. Hefur sú skoðun mín ekki breyst.
Það að setja fram svarið með þessum hætti, líkt og ég gerði á fundinum, hefði líka verið í hrópandi ósamræmi við eitt helsta baráttumál Viðreisnar, að ná þjóðarsátt um að bætt launakjör kvennastétta.
Ef ætlunin er að nota svar mitt í pólitískum tilgangi þá er lítið við því að gera. Þannig er pólitíkin en ég bind enn vonir við að fólk hlusti á útskýringar við eðlilegum spurningum og vangaveltum. Annars er hægt að ná í mig í síma 6203009 og togga1965@gmail.com.“