Þolinmæðin á þrotum

Fréttir|3. nóvember 2015

Skólastjórnendur grunnskólanna í Fjarðabyggð lýsa yfir miklum áhyggjum og vonbrigðum með stöðu samningamála Skólastjórafélags Íslands og launanefndar sveitarfélaga. Þetta kemur fram í ályktun sem skólastjórnendurnir lögðu fyrir bæjarstjórn Fjarðabyggðar í liðinni viku. 

Á ályktuninni segir meðal annars að skólastjórnendur hafi um langt skeið verið samningslausir og setið eftir hvað launahækkanir varðar. „Á sama tíma hefur verið sett á okkur aukin vinna til að unnt sé að útfæra kjarasamning sem sveitarfélögin gerðu við kennara. Er nú svo komið að hluti okkar er í dag með töluvert lægri laun en undirmenn okkar."

Skólastjórnendurnir telja ástandið svo alvarlegt að stjórnendur séu farnir að íhuga uppsagnir. Þolinmæðin sé á þrotum. 

Ályktunin í heild.