Þögnin er ekki hlutlaus

Fréttir|26. ágúst 2016

Um áttatíu grunnskólakennarar sóttu námskeið í jafnréttis- og kynjafræðikennslu sem fram fór í Odda í síðustu viku. Námskeiðið, sem var einkum hugsað fyrir kennara í efri bekkjum grunnskóla, var haldið á vegum jafnréttisnefndar KÍ og Jafnréttisstofu.

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari í kynja- og jafnréttiskennslu, hóf námskeiðið með umræðu um meðvitund kennara um kynjamismunun í samfélaginu, athafnir þeirra í kennslu og samskipti við nemendur út frá kynjasjónarmiðum. Er kennarinn til dæmis að leiðrétta eða viðhalda kynjamisrétti, beint eða óbeint, í gegnum sína kennslu eða samskipti sín við nemendur? Þá ræddi Hanna Björg um hvernig bein kynjafræðikennsla getur farið fram, bæði fyrir unglinga og yngri nemendur. Farið var yfir hvað nemendur sjá utan skólastofunnar, m.a. í kvikmyndum, fjölmiðlum og annars staðar í samfélaginu, og hvaða áhrif kynjamismunun getur haft á þá. Að lokum hvatti Hanna Björg kennara til að hafa hugrekki til að láta til sín taka, því „þögnin er ekki hlutlaus.“

Þóra Þorsteinsdóttir, kynjafræðingur og grunnskólakennari, stýrði vinnustofu í síðari hluta námskeiðsins. Farið var í kennsluefni sem Þóra hefur samið og samanstendur af sex æfingum og hópverkefni. Æfingarnar sex geta staðið sjálfstætt og geta átt heima í námsgreinum á borð við samfélagsfræði, sögu, íslensku og stærðfræði. Námsefni Þóru er hægt að skoða á vef Kvenréttindafélagsins, http://grunnskoli.kvenrettindafelag.is/.

Námskeiðið stóð yfir í tvær klukkustundir og þóttist takast vel til. Jafnréttisnefnd KÍ og Jafnréttisstofa hyggjast endurtaka leikinn í vetur þar sem nokkur svæðafélög grunnskólakennara hafa óskað eftir fá námskeiðið á haustþing eða trúnaðarmannanámskeið, þar á meðal KS á Suðurlandi og KR á Reykjanesi.