Þjónusta yfir hátíðirnar

Fréttir|21. desember 2025
Getty Images O E Jd9hmdw Unsplash

Móttaka Kennarasambandsins er lokuð á milli jóla og nýárs en svarað er í síma á milli klukkan 10 og 12.

Skrifstofa Kennarasambandsins verður lokuð á Þorláksmessu og yfir hátíðardaga. Móttaka KÍ verður lokuð 29. og 30. desember en svarað verður í símann á milli klukkan 10 og 12. Félagsfólki er jafnframt bent á að ávallt er hægt að senda fyrirspurnir í gegnum umslagið á vef KÍ eða Mínar síður.

Þjónusta Orlofssjóðs yfir hátíðirnar

Starfsfólk Orlofssjóðs mun vakta og lesa tölvupósta á milli klukkan 11:00 og 12:00 á Þorláksmessu, 23. desember og annan í jólum, 26. desember.

Hægt er að senda erindi og tilkynningar, svo sem um veikindi eða annað sem hefur áhrif á ferðaáætlanir á netfang Orlofssjóðs, orlof@ki.is.

Félagsfólk, sem dvelur í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um hátíðarnar, er beðið að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á. Upplýsingar um umsjónarmenn er að finna í leigusamningi.


Starfsfólk Kennarasambandsins sendir félagsfólki og fjölskyldum þeirra óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.

Gleðilega hátíð