Þjónusta KÍ í sumar
Fréttir|30. júní 2021

Formleg sumarlokun KÍ hefst mánudaginn 12. júlí.
Nú þegar sumarið er gengið í garð eru nokkur atriði sem vakin er athygli er á.
- Formleg sumarlokun KÍ hefst mánudaginn 12. júlí og stendur venju samkvæmt í þrjár vikur. Skrifstofa KÍ verður opnuð á nýjan leik að morgni þriðjudagsins 3. ágúst.
- Þjónustufulltrúar munu eftir bestu getu afgreiða allar umsóknir, sem berast fyrir 30. júní, áður en sumarlokun hefst. Þetta á við um sjúkrasjóð, Vonarsjóð FG/SÍ, Vísindasjóð FL/FSL og Starfsmenntunarsjóð FTST.
- Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð á meðan á sumarlokun stendur. Símatími verður alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00, í síma 595 1170 og netfang orlof@ki.is.
- Þjónustufulltrúar Vísindasjóðs FF/FS munu eftir bestu getu afgreiða allar umsóknir, sem berast fyrir 5. júlí, áður en sumarlokun hefst. Netfang Vísindasjóðs er visffogfs@ki.is.
- Netfang sjóðasviðs er sjodir@ki.is.