Þjóðfundur um framtíð skólaþjónustu

Fréttir|6. mars 2023

Þjóðfundur mennta- og barnamálaráðherra um framtíð skólaþjónustu fer fram í Hörpu í dag. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Mörg hundruð manns taka þátt í fundinum sem fer fram í dag á milli klukkan 9:00 og 16:00 í Silfurbergi í Hörpu.

  • Hér er hægt að fylgjast með í beinu streymi

Á vef Stjórnarráðsins segir um fundinn: Tilgangur þjóðfundarins er að ræða niðurstöður samráðs um ný heildarlög um skólaþjónustu, varpa ljósi á álitamál og leita lausna í sameiningu. Erindum á þjóðfundinum verður streymt á vef Stjórnarráðsins og þau túlkuð á táknmáli bæði í sal og í streymi. Að framsögu lokinni tekur við hópvinna þar sem þátttakendur ræða ýmis álitamál varðandi skólaþjónustu og leita lausna í sameiningu. Nánari dagskrá verður tilkynnt fljótlega.

Mennta- og barnamálaráðherra kynnti í haust áform sín um að leggja fram ný heildarlög um skólaþjónustu. Haldin var ráðstefna um áformin og samráð í húsfylli á Grand Hótel Reykjavík í haust. Undanfarna mánuði hefur staðið yfir umfangsmikið samráðsferli við fjölbreyttan hóp haghafa þar sem m.a. um 300 manns tóku þátt á rafrænum samráðsfundum í desembermánuði. Niðurstöður fyrsta hluta samráðsferlisins sýna að töluverður samhljómur ríkir meðal ólíkra haghafa um áherslur og heildarsýn á skólaþjónustu á Íslandi en þó standa eftir ýmis mikilvæg  úrlausnarefni.

Hér er hægt að lesa meira um fundinn.

Hér er hægt að lesa meira um samráð stjórnvalda vegna bættrar skólaþjónustu.