Þjóðfélagssáttmáli

Fréttir|18. febrúar 2014

„Samkomulag um 2,8% launahækkunin varð til í samningum milli ríkisstjórnarinnar, ASÍ og SA. Kennarar áttu enga aðild að samningunum og hafa ekki veitt ASÍ neitt umboð til að semja fyrir sig og geta því ekki verið bundnir af samningnum,“ skrifar Ægir Karl Ægisson, áfangastjóri við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, í nýjum Vikupósti á vef FF.

Ægir segir núverandi tilboð stjórnvalda til framhaldsskólakennara sagt byggt á hugmynd um þjóðarsátt sem framhaldsskólakennarar verði að sætta sig við. Þessi þjóðarsátt brýtur að mati Ægis Karls gegn eðli þjóðfélagssáttmála, „...þjóðarsáttin er umboðslaus, hún hunsar bæði hagsmuni og aðstæður kennara og mismunar í beitingu samningsins,“ segir meðal annars í Vikupóstinum.