Þingmenn hvattir til að fella lífeyrisfrumvarp

Kennarasambandið telur að frumvarpið brjóti í núverandi mynd á stjórnarskrárbundnum eignarrétti sjóðfélaga.
Þórður Á. Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands sendi í gær áskorun til allra þingmanna þar sem þeir voru hvattir til að fella frumvarp um breytingar á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna sem nú er í meðförum þingsins. Áskorunin var ítrekuð í morgun, en hún er svohljóðandi:
„Kennarasamband Íslands (KÍ) áréttar að frumvarp til breytinga á lögum um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna tryggir ekki sjóðfélögum LSR og BRÚ óbreyttan rétt samkvæmt markmiðum samkomulags ríkis, sveitarfélaga, BHM, BSRB og KÍ frá 19. september 2016.
Kennarasambandið telur að frumvarpið brjóti í núverandi mynd á stjórnarskrárbundnum eignarrétti sjóðfélaga. Verði það að lögum mun KÍ leita til dómstóla til að verja réttindi félagsmanna sinna.
Kennarasambandið leggur fast að þingmönnum að breyta frumvarpinu í samræmi við umsögn KÍ um málið svo það tryggi réttindi núverandi sjóðfélaga en umsögnina má finna hér: Umsögn KÍ um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum (breyting á A-deild sjóðsins). Þingskjal 6 — 6. mál.
Ef ekki er vilji til að breyta frumvarpinu í anda þess sem umsagnir KÍ, BHM og BSRB leggja til skorar stjórn Kennarasambandsins á alþingismenn að fella frumvarpið.
Stjórn KÍ tekur undir ályktanir BHM og BSRB frá 20. desember 2016 og lýsir yfir áhyggjum sínum með ástandið á vinnumarkaði og traust milli aðila ef frumvarpið verður samþykkt á Alþingi í þeirri mynd sem það kemur frá meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis“.