Þing lýsir áhyggjum af kennaraskorti

Fréttir|4. nóvember 2022

Ályktun þar sem lögð er á áhersla á mikilvægi þess að ráða fagfólk til starfa í leik- og grunnskólum var samþykkt samhljóða á þingi KÍ.

„8. Þing Kennarasambands Íslands, haldið 1.-4. nóvember 2022 lýsir yfir áhyggjum af skorti á kennurum og mönnunarvanda í leik-og grunnskólum, sérstaklega í ljósi nýlegrar umræðu yfirstjórnar Reykjavíkurborgar og áætlanir um fækkun starfsfólks í leik- og grunnskólum borgarinnar." 

Á þessum orðum hefst ályktun sem var samþykkt samhljóða á 8. þingi KÍ fyrr í dag. 

Þar segir jafnframt að ráða skuli fagfólk til starfa í leikskólum og grunnskólum svo tryggja megi farsæld nemenda. „Kennarar eru sérfræðingar á sviði menntunar og afar mikilvægt er að starfsumhverfi þeirra sé tryggt með velsæld barna í huga," segir á ályktuninni. 

Ályktunin í heild

8. Þing Kennarasambands Íslands, haldið 1.-4. nóvember 2022 lýsir yfir áhyggjum af skorti á kennurum og mönnunarvanda í leik-og grunnskólum, sérstaklega í ljósi nýlegrar umræðu yfirstjórnar Reykjavíkurborgar og áætlanir um fækkun starfsfólks í leik- og grunnskólum borgarinnar.

Þingið leggur áherslu á mikilvægi ráðninga á fagfólki í leik- og grunnskóla höfuðborgarinnar jafnt sem á landinu öllu til að tryggja gæði menntunar og farsæld nemenda. Kennarar eru sérfræðingar á sviði menntunar og afar mikilvægt er að starfsumhverfi þeirra sé tryggt með velsæld barna í huga.

Þingi KÍ lauk í dag. Næst verður blásið til þings að fjórum árum liðnum.