Þing KÍ mótmælir harðlega gífuryrðum og sleggjudómum
Þing Kennarasambands Íslands samþykkti rétt í þessu ályktun þar sem staðhæfingum um skólamál, sem birtar eru í auglýsingu Sjálfstæðisflokksins í Fréttablaðinu, í dag er harðlega mótmælt. Ályktunin er sem hér segir:
„Sjötta þing Kennarasamband Íslands lýsir furðu sinni á staðhæfingum sem fram koma í auglýsingu Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík í Fréttablaðinu í morgun. Í auglýsingunni er staðhæft að skólakerfið hafi brugðist börnunum okkar. Bætt er við að skólakerfið hjakki í sama farinu. Þessum gífuryrðum og sleggjudómum mótmælir þing KÍ harðlega.
Innihald auglýsingarinnar er einnig í fullkomu ósamræmi við orð Halldórs Halldórssonar, borgarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins, þegar hann ávarpaði þing KÍ á þriðjudaginn. Þar sagðist hann vera talsmaður samstarfs og sátta í skóla- og menntamálum.
Slíkt ósamræmi milli þess sem Halldór segir milliliðalaust við kennara á þingi þeirra og þess sem hann segir almenningi í auglýsingunni er óskiljanlegt."