Þing KÍ fordæmir brottflutning flóttafólks

Í nýsamþykktri skólastefnu KÍ kemur fram að í skólum eigi að ríkja jöfnuður, jafnrétti og velferð en auðvitað á það við um samfélagið í heild sinni.
Þing Kennarasambandsins samþykkti ályktun þar sem aðgerðir stjórnvalda við brottflutning hóps flóttafólks í fyrradag eru fordæmdar. Í ályktun þingsins segir að Ísland hafi skuldbundið sig til að virða og framfylgja alþjóðlegum mannréttindasamningum. Þingið hvetur til þess að þeim sé fylgt í hvívetna.
Ályktunin í heild
8. þing Kennarasambands Íslands fordæmir þær aðgerðir stjórnvalda sem fóru fram í vikunni við brottflutning flóttafólks úr landi.
Fólki á flótta var vísað brott í skjóli nætur á ómannúðlegan hátt en þar á meðal voru nemendur sem sóttir voru af lögreglu og frelsissviptir á heimleið úr skóla. Einnig var meðal fólksins fatlaður einstaklingur, manneskja með alvarleg veikindi og fjölskylda sem beið aðalmeðferðar í dómsmáli gegn íslenska ríkinu ásamt fjölbreyttum hópi fólks á öllum aldri með mál á ýmsum stöðum í kerfinu.
Ísland hefur skuldbundið sig til að virða og framfylgja alþjóðlegum mannréttindasamningum og hvetur þingið til að þeim sé fylgt í hvívetna. Við þessar aðgerðir voru frelsi og mannréttindi virt að vettugi en Kennarasamband Íslands leggur áherslu á jafnan rétt og aðgengi allra að grundvallarmannrétttindum.
Í nýsamþykktri skólastefnu KÍ kemur fram að í skólum eigi að ríkja jöfnuður, jafnrétti og velferð en auðvitað á það við um samfélagið í heild sinni. Þar kemur einnig fram að stefna eigi að því að móta framtíð þar sem mannréttindi séu tryggð sem og stefnt sé að réttlátum og sanngjörnum heimi.