Þing Kennarasamabandsins fer fram í haust

Stjórn KÍ hefur ákveðið að færa þing KÍ, sem fyrirhugað var að halda í apríl, til haustsins. Ástæðan er sú óvissa sem ríkir vegna COVID og álag sem félagsfólk KÍ býr við og mun búa við næstu vikurnar.
Stjórn Kennarasambands Íslands hefur ákveðið að fresta þingi KÍ fram á haust. Til stóð að halda þingið, sem er það áttunda frá stofnun KÍ, í byrjun apríl.
Þing þarf að boða með tíu vikna fyrirvara og gefst félagsfólki tækifæri til að koma málum á dagskrá þings í aðdraganda þess. Það er mat stjórnar að vikurnar fram undan séu markaðar óvissu vegna veirufaraldursins og að álag muni einkenna líf og störf félagsfólks KÍ næstu vikur.
Virk þátttaka grasrótarinnar í aðdraganda þings og á þinginu sjálfu er forsenda þess að þing standi undir nafni sem mikilvægasti lýðræðisvettvangur Kennarasambandsins. Stefnan til næstu fjögurra ára er sett á þinginu.
Hefðbundið hefur verið á þingum KÍ að formanns- og varaformannskipti fari fram á síðasta degi þings. Að þessu sinni verður annar háttur hafður á og áfram er stefnt að formannsskiptum í apríl. Þá taka Magnús Þór Jónsson og Jónína Hauksdóttir við embættum formanns og varaformanns af þeim Ragnari Þór Péturssyni og Önnu Maríu Gunnarsdóttur.
Dagsetning þings verður kynnt þegar hún liggur fyrir.