Þekkir þú kröfurnar sem gerðar eru til hæfni kennara í dag?

Nýr hæfnirammi fyrir kennara og skólastjórnendur hefur litið dagsins ljós. Hann var unninn í víðtæku samstarfi og fjallar um mikilverðustu þættina í starfi kennara og skólastjórnenda. Hér stikla Birgir U. Ásgeirsson, formaður Kennararáðs og Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, á stóru um hæfnirammann og vinnuna við gerð hans, í aðsendri grein í Skólavörðunni.
Hvaða hæfni þurfa kennarar í dag að hafa?
Hæfni kennara er skipt í tvennt sbr. lög nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Annars vegar er það almenn hæfni sem allir kennarar og skólastjórnendur skulu búa yfir óháð aldri og þroska nemenda eða námssviði/greinasviði. Hins vegar fjalla lögin um sérhæfða hæfni sem tekur t.d. mið af ákveðinni námsgrein eða aldri nemenda eða snýr að sérhæfingu skólastjórnenda.
Hæfniramminn er útfærður í reglugerð nr. 1355/2022 sem skilgreinir kröfur um almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda. Almenna hæfnin er metnaðarfull og yfirgripsmikil. Hún flokkast í fjögur meginsvið:
- Uppeldis- og kennslufræði - Þar eru hæfniviðmið sem snúa að hlutverki kennarans við að standa vörð um og stuðla að menntun og farsæld barna, inntaki, aðferðum og orðræðu náms- eða greinasviða og helstu rannsóknar- og greiningaraðferðum og opinberum stefnuskjölum sem nýtast í námi og kennslu.
- Nám og kennsla - Þarna eru hæfniviðmið sem snúa að skipulagningu og undirbúningi náms og kennslu, fjölbreyttum kennsluháttum, skipulagi og nýtingu tækja og gagna til að auðvelda nemendum námið og mati og greiningu á námsframvindu.
- Samvinna, samskipti og starfsþróun - Á þessu sviði eru hæfniviðmið sem snúa að samvinnu innan skólasamfélagsins sem styður við nám, þroska, velferð og vellíðan nemenda, samskiptum við aðila skólasamfélagsins og starfsþróun sem stuðlar að því að auka eigin hæfni og vera faglegur leiðtogi alla starfsævina.
- Íslenskt mál - Þar eru hæfniviðmið sem snúa að mati á eigin málfærni, beitingu málsins, kennsluháttum sem örva nemendur í tjáningu á íslensku, beitingu fjölbreyttra kennsluaðferða í kennslu íslensks tungumáls og nýtingu áhrifa fjölmenningar. Áhersla er lögð á hæfni allra kennara í íslensku þar sem tiltekin hæfniviðmið eru sett fram. Markmið stjórnvalda er að efla íslenskukennslu á öllum skólastigum og samhliða menntun og starfsþróun kennara. Hvað íslenskuna varðar skerpir hæfniramminn einnig á ábyrgð þeirra sem fara með ráðningar. Kröfur um hæfni í íslensku skulu miðast við það starf sem auglýst er en að jafnaði skal miða við að lágmarkshæfni í íslensku sé samsvarandi C1 í Evrópska tungumálarammanum.
Kennarar eru og eiga að vera stoltir af því faglega starfi sem þeir sinna
Sérhæfð hæfni kennara
Sérhæfð hæfni kennara getur verið með ýmsum hætti. Sérhæfingin getur til dæmis verið á/í:
- ákveðnu skólastigi, þ.e. leik- eða grunnskólastigi
- ákveðnu námssviði leikskóla (t.d. heilbrigði og vellíðan)
- ákveðnu greinasviði, námsgrein eða verkgrein grunnskóla (t.d. í samfélagsgreinum, íslensku eða textílmennt)
- ákveðinni námsgrein eða starfsgrein á framhaldsskólastigi (t.d. efnafræði eða bifvélavirkjun)
- viðfangsefnum skólastarfs þvert á skólastig.
Ljóst er að sérhæfingin getur verið með margvíslegum hætti. Háskólar sem bjóða upp á kennaranám hafa því ýmsa möguleika á námsframboði.
Skólastjórnendur búa yfir sérhæfðri hæfni auk almennu hæfninnar. Hæfni skólastjórnenda snýr að faglegri forystu, samskiptum og samvinnu, mannauðsmálum og velferð, fjármálum og rekstri. Hæfniramminn telur upp nokkur hæfniviðmið sem snúa sérstaklega að skólastjórnendum.
Til hvers hæfnirammi?
Hæfniramminn veitir leiðsögn um inntak kennaramenntunar hjá háskólum. Hann felur í sér viðmið og er ætlað að setja fram skilyrði fyrir útgáfu leyfisbréfs kennara, vera grunnur að innra og ytra mati á gæðum skólastarfs og veita leiðsögn við ráðningu kennara og skólastjórnenda. Hæfniramminn veitir að auki leiðsögn um starfsþróun.
Starfandi kennarar taka ábyrgð á eigin starfsþróun og skulu skv. reglugerðinni leggja áherslu á að auka hæfni sína, hvort tveggja almennu og sérhæfðu hæfnina. Starfsþróunarframboðið þarf því að taka mið af hæfninni í hæfnirammanum. Þannig gerum við kennurum kleift að vera faglegir leiðtogar alla starfsævina.
Í reglugerðinni kemur fram að starfsþróun kennara og skólastjórnenda og skólaþróun skuli vera markviss þáttur í skólastarfi og taka mið af menntastefnu stjórnvalda og starfsþróunaráætlunum skóla. Einnig að leitast kemur fram að leitast skuli við að kennari sem hefur störf við leik-, grunn- eða framhaldsskóla njóti starfstengdrar leiðsagnar til allt að tveggja ára. Miða skal við að leiðsögnin sé á ábyrgð kennara með sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf. Í mörgum skólum er enn langt í land með að þetta sé uppfyllt.

Kröfurnar um hæfni kennara eiga að vera miklar
Kennararáð og hæfniramminn
Kennararáð vann tillögu að innihaldi reglugerðarinnar um hæfnirammann. Stofnun kennararáðs er nýmæli í lögum um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda. Kennararáð er skipað sérfræðingum, þvert á stofnanir og samtök, sem koma að skipulagi skólastarfs, kennslu og kennaramenntunar. Þar af eru þrír sérfræðingar í kennslu á mismunandi skólastigum, tilnefndir af Kennarasambandi Íslands.
Ráðherra mennta- og barnamála skipar kennararáð til þess að veita ráðgjöf og leiðbeiningar um þróun og útfærslu hæfnirammans. Kennararáði er jafnframt ætlað að veita ráðgjöf um starfsþróun á grundvelli hæfnirammans, fylgjast með alþjóðlegri þróun og áherslum í menntavísindum, veita leiðsögn um mat á sérhæfingu kennara við ráðningu og síðast en ekki síst efla vitund um mikilvægi kennarastarfsins í samfélaginu.
Hæfni kennara eins og hún birtist í hæfnirammanum tekur mið af hæfniviðmiðum í alþjóðahæfniramma kennara og skólastjórnenda sem Alþjóðasamtök kennara (EI) og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hafa gefið út. Þau hafa verið leiðarljós ríkja um allan heim í vinnu við gerð og innleiðingu hæfniviðmiða kennara og skólastjórnenda í hverju landi. Rýnt var í hæfniramma annarra ríkja, ýmis stefnuskjöl og skýrslur og var inntakið haft til hliðsjónar við gerð hæfnirammans.
Hæfniramminn var unninn í víðtæku samráði. Starfræktir voru vinnuhópar á vegum kennararáðs sem komu að efnislegri vinnu við hann og einnig var leitað álits og ráðgjafar til sérfræðinga utan ráðsins um afmörkuð efni. Mikið samstarf var milli kennara, stjórnenda, háskóla sem mennta kennara, sveitarfélaga og ríkis. Að lokum var reglugerðin með hæfnirammanum aðgengileg í samráðsgátt stjórnvalda. Afraksturinn er vandaður hæfnirammi sem byggir á breiðu samstarfi, þ.m.t. við starfandi kennara.
Kröfur til kennara breytast með tíma. Hæfnirammi er því endurskoðaður reglulega af kennararáði. Þessar vikurnar stendur kennararáð fyrir kynningum á inntaki reglugerðarinnar fyrir kennara, skólastjórnendur, háskóla og þá sem koma að mati á skólastarfi og starfsþróun. Virkt samtal við vettvanginn er mikilvægt og er það hér fyrsta skrefið í stöðugri endurskoðun hæfnirammans.
Kröfurnar um hæfni kennara eiga að vera miklar
Kennarar eru og eiga að vera stoltir af því faglega starfi sem þeir sinna. Hæfniramminn varpar ljósi á þann margslungna og flókna veruleika sem kennarar búa við í sínu starfi nú á þriðja áratug 21. aldar. Kröfurnar eru miklar og það er gott. Enda snúast störf kennara og skólastjórnenda um það mikilvægasta í samfélaginu, að mennta nemendur með fagmennsku og sérfræðiþekkingu.
Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.