Þeirra réttur – okkar skyldur
Fréttir|15. febrúar 2017

Málþingið er fyrir skólafólk og aðra sem koma að menntun og skólastarfi.
Málþing Skólamálaráðs KÍ um menntun barna í leit að alþjóðlegri vernd fer fram 3. mars. Takið daginn frá.
Málþing Skólamálaráðs KÍ um menntun barna í leit að alþjóðlegri vernd
Föstudagur 3. mars 2017, kl. 8:30-12:30 – Hvammi, Grand hóteli, Reykjavík
Markmið málþingsins er að vekja athygli á og að skapa skilning á aðstæðum og þörfum barna í leit að alþjóðlegri vernd. Hvernig viljum við hafa umgjörðina hér á landi um menntun barnanna, starf kennara og skóla? Málþingið er fyrir skólafólk og aðra sem koma að menntun og skólastarfi.
Dagskrá
- Kl. 8:30
Mæting, kaffi og skráning
- Kl. 8:50
Setning. Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ.
- Kl. 9:00
Alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um réttindi barna. Hvernig stöndum við okkur? Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.
- Kl. 9:15
Staða flóttamanna hér á landi og þeirra sem leita að alþjóðlegri vernd út frá lögum og skilgreiningum. Hver er staðan? Guðríður Lára Þrastardóttir lögfræðingur hjá Rauða krossinum.
- Kl. 9:30
Horft inn í skólann: Hvernig gengur, hver er staðan? Um menntun barna í leit að alþjóðlegri vernd.
Heiða Ingólfsdóttir, sérkennslustjóri leikskólanum Holti Reykjanesbæ, Kristrún Sigurjónsdóttir, deildarstjóri móttökudeildar Lækjarskóla Hafnarfirði og Guðlaug Kjartansdóttir, brautarstjóri nýbúadeildar Tækniskólans.
- Kl. 10:15
Menntun barnanna, starf kennara og skóla. Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ.
- Kl. 10:30
Kaffihlé.
- Kl. 10:50
Umræðuhópar í 25 mín: Hvernig viljum við hafa umgjörðina hér á landi um menntun barnanna, starf kennara og skóla? Hverju viljum við breyta? Hvernig?
- Kl. 11:15
Panelumræður með þátttöku fundarmanna. Þátttakendur í panelumræðum verða: - Fanney Dóróthea Halldórsdóttir, fræðslustjóri Hafnarfjarðar
- Helgi Arnarson, fræðslustjóri Reykjanesbæjar
- Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar
- Björk Óttarsdóttir sérfræðingur, mennta- og menningarmálaráðuneytinu
- Lilja Borg Viðarsdóttir, lögfræðingur innanríkisráðuneytinu
- Stjórnandi umræðna er Aðalbjörn Sigurðsson útgáfu- og kynningarstjóri KÍ.
- Kl. 12:00
Aðalbjörn Sigurðsson stýrir þankahríð um framtíðina með þátttöku fundarmanna. Hvað höfum við lært hér í dag?
- Kl. 12:15
Samantekt umræðna.
- Kl. 12:30
Málþingsslit.
Streymt verður frá málþinginu á vef Netsamfélagsins og upptaka af því verður gerð aðgengileg á netinu.