Þegar börnunum blöskrar

Hófsemi er ein höfuðdyggðanna sjö í kristinni siðfræði. Einn meginboðskapur Hávamála er sömuleiðis hófsemi og sé litið enn lengra til baka má nefna að yfir inngangi musteris forngríska guðsins Appolons stóðu þessi orð: meden agan. Hóf í öllu.
Stór hluti fólks, að minnsta kosti í okkar heimshluta, hefur þó ekki tamið sér þessa höfuðdyggð. Hjá okkur er það þvert á móti óhófið sem oft ræður ríkjum. Bílarnir of margir, allir skápar fullir af fötum, margir alltof þungir o.s.frv. Nú borgar sig sjaldnast að gera við heimilistæki, þvottavél sem bilar fer beina leið á haugana og ný er keypt í staðinn. Og sífellt kemur eitthvað nýtt „sem þú verður að eignast“. Þetta þekkja allir. Sumt er stundarfyrirbæri, sem endar í geymslunni og svo í Sorpu, en annað verður nánast ómissandi hluti hins daglega lífs. Farsíminn er í þeim hópi.
Gömul hugmyndÞótt farsíminn sé ekki ýkja gömul uppfinning eru þó margir áratugir, reyndar næstum heil öld, síðan fjarskiptaverkfræðingar fóru að velta fyrir sér möguleikum á símtækjum sem ekki væru bundin við fasta staðsetningu. Tæknin var hins vegar ekki til staðar.
Árið 1959 skrifaði breski rithöfundurinn Arthur C. Clarke ritgerð, sem kannski mætti fremur kalla spádóm. Hann sá fyrir sér svo lítið og létt senditæki að hver maður myndi ganga með það í vasanum og „sá tími mun koma að við getum hringt í einstakling hvar sem er á jörðinni, með því einu að velja símanúmer viðkomandi.“
Clarke nefndi enn fremur að þetta tæki gerði kleift að finna staðsetningu þess sem það bæri á sér og „þannig myndi enginn týnast að óþörfu. Þessi spá rithöfundarins hefur sannarlega ræst. Hann spáði því líka að þessi tæki yrðu komin á markaðinn um miðjan níunda áratug síðustu aldar en það rættist reyndar nokkru fyrr, því árið 1973 sýndi bandaríska fyrirtækið Motorola fyrsta handfarsímann. Hann fór reyndar ekki vel í vasa þar sem hann vóg rúm tvö kíló.
Farsíminn er ekki það eina sem Clarke sá fyrir en hann spáði því skömmu eftir 1940 að menn myndu stíga fæti á tunglið fyrir árið 1970. Hann skrifaði fleiri en 70 bækur. Þekktust þeirra er líklega ,,Sentinel“ en kvikmynd Stanley Kubrick „2001: A Space Odyssey“ er byggð á henni en kvikmyndahandritið skrifuðu þeir Clarke og Kubrick í sameiningu.
Sumum dugir jafnvel ekki einn sími. Í strætó, á biðstofum, veitingastöðum og kaffihúsum, alls staðar er fólk gónandi á símann en tekur varla eftir neinu í kringum sig.
Ekki bara sími
Fyrsta sjálfvirka farsímanetið var opnað í Japan árið 1979. Á þeim fjörutíu árum sem síðan eru liðin hefur þróunin verið örari en nokkurn gat órað fyrir. Þegar þessi tæknibylgja barst til Íslands ríkti nokkur óvissa um nafnið. Handsími, vasasími, smásími og fleiri álíka nöfn heyrðust en orðin farsími eða gemsi (GSM) festust fljótlega í sessi. Í dag er notkun símanna ekki einskorðuð við að hægt sé að hringja úr þeim eða í, þeir eru orðnir sambland síma og tölvu ásamt myndavél. Þessi háþróuðu tæki kallast snjallsímar, til aðgreiningar frá eldri gerðum. Undratæki segja margir.
Nánast allir með einn, margir með tvo
Í dag á nánast hver einasti maður farsíma. Þetta gildir jafnt um unga sem aldna. Og þessir símar liggja ekki allir í vasanum og bíða þess að þeir hringi eða eigendurnir taki þá upp til að hringja. Öðru nær. Ef tækifæri gefst, og jafnvel þótt það gefist ekki, er fólk með símann í hendinni – en þó ekki endilega að tala. Það er bara verið að „tékka á hlutunum“, senda kunningjunum skilaboð, skoða vefsíður eða sendingar frá öðrum, svo eitthvað sé nefnt. Sumum dugir jafnvel ekki einn sími. Í strætó, á biðstofum, veitingastöðum og kaffihúsum, alls staðar er fólk gónandi á símann en tekur varla eftir neinu í kringum sig. Iðulega má sjá tvö eða fleiri ungmenni ganga hlið við hlið. Í stað þess að spjalla saman er hver og einn með augun og puttana á símanum. Allir kannast við þessar lýsingar.
Símafíkn
Fyrst eftir að farsímarnir komu til sögunnar leiddu líklega fáir hugann að því hve stórt hlutverk þetta undratæki (sem það vissulega er) myndi leika í daglegu lífi fólks. Fáum datt í hug að setja þyrfti sérstakar reglur um notkun farsímans. Þegar farið er í leikhús eða á tónleika eru viðstaddir beðnir um að slökkva á farsímum og við útfarir eða aðrar kirkjulegar athafnir gildir hið sama.
Víða hefur farsímanotkunin og það sem henni fylgir (skilaboð og tölvupóstur) mikið verið rædd og á mörgum vinnustöðum hafa verið settar ákveðnar reglur varðandi þessa notkun, einkum tölvupóstsendingar utan vinnutíma. Margir skólar hafa sömuleiðis sett ákveðnar reglur um notkun símanna.
Þegar heimilissíminn var eini sími heimilisins var svonefnd símafíkn óþekkt en með tilkomu farsímans hafa margir, og þeim fer sífellt fjölgandi, orðið símafíkninni að bráð. Þar er enginn aldurshópur undanskilinn en tiltölulega fæsta fíkla er að finna meðal eftirlaunafólks.
Börnunum blöskrar
Á fjölmörgum heimilum er síðdegið og kvöldmatartíminn eina samverustund fjölskyldunnar; heimanám, kannski með aðstoð foreldra, matartilbúningur og kvöldmaturinn ásamt uppvaski og tilheyrandi. En síminn kærir sig kollóttan um slíkt og mörg börn upplifa það að foreldrarnir séu mjög uppteknir af símanum.
„Þetta gæti verið mikilvægt“ eða „ég á von á mikilvægum tölvupósti vegna vinnunnar“ er algengt viðkvæði foreldra. Börnunum leiðist þetta og finnst þau vera afskipt og að síminn sé sífellt tekinn fram yfir þau.
Símasamningurinn
Fyrir nokkru kvörtuðu börnin í 2. bekk (7-8 ára) í Fynslundskólanum í Kolding á Suður-Jótlandi undan því við bekkjarkennarann að foreldrarnir væru alltaf svo uppteknir við símann að þeir mættu ekki vera að neinu. Ein stúlka nefndi að kvöldið áður hefði hún verið að undirbúa matinn, mexíkóskar pönnukökur, með pabba sínum. Hún hefði spurt hvort ekki væri nóg að hafa þrjú avókadó (lárperur) í maukið með pönnukökunum. Pabbinn, með símann í höndunum, svaraði ekki og þegar hún spurði aftur hváði hann. Undir þessa lýsingu tóku mörg börn í bekknum og sögðu hana dæmigerða; foreldrarnir svöruðu út í hött og gæfu sér einfaldlega ekki tíma til neins annars en vera í símanum.
Kennarinn spurði hvað þau vildu gera í því. Þá stakk einn nemandinn upp á því að bekkurinn myndi í sameiningu búa til símareglur, eins konar samning sem allir á heimilinu myndu undirrita. Þetta þótti öllum í bekknum heillaráð og létu ekki sitja við orðin tóm. Útkoman var samningur sem börnin ákváðu að kalla „Símasamning fjölskyldunnar“. Hann er ekki flókinn.
- Síminn er lagður til hliðar
- Í klukkutíma þegar komið er heim úr skóla eða vinnu
- Meðan heimanám fer fram
- Meðan kvöldmatur er borðaður
- Eftir kvöldmatinn meðan vaskað er upp og gengið frá
- Þegar fjölskyldan horfir á sjónvarpið saman
Hægt er að bæta við fleiri atriðum ef þurfa þykir. Fjölskyldan skrifar svo undir og samningurinn er látinn vera á áberandi stað, t.d. á hurðinni á kæliskápnum.
Samstaðan skapar þrýsting á foreldrana
Andreas Lieberoth, aðjúnkt við Háskólann í Árósum, sagði í viðtali við Danska útvarpið (DR) að annarsbekkingarnir í Fynslundskólanum ættu mikið hrós skilið fyrir að hafa haft frumkvæði að símasamningnum. Hann hafði ekki áður heyrt um slíkan samning en kvaðst viss um að margir myndu notfæra sér hugmyndina. „Börn vilja nefnilega skýrar reglur og standa við þær.“
„Samningur skapar líka ákveðinn þrýsting á foreldrana, sem fá að heyra að það séu allir með þennan samning og þau geti ekki annað en verið með,“ sagði Andreas Lieberoth.
Samningurinn er, eins og áður sagði, nýtilkominn en hefur vakið talsverða athygli í Danmörku. Danska útvarpið hefur fjallað ítarlega um hann á vefsíðu sinni og á aðalrás útvarpsins og sömuleiðis hefur verið sagt frá honum í nokkrum stærstu blöðum landsins.