Þátttakan tæp 30 prósent klukkan tólf

Fréttir|13. apríl 2021

Alls höfðu 29,1% félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum greitt atkvæði um nýjan kjarasamning á hádegi í dag.

Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hefur nú staðið yfir síðan á hádegi á föstudag. 

Alls höfðu 29,1 prósent greitt atkvæði klukkan tólf í dag. Atkvæðagreiðslan stendur til klukkan 12 á fimmtudaginn næstkomandi. 

Skrifað var undir hinn nýja kjarasamning 31. mars síðastliðinn. 

Hægt að horfa á kynningarfund um kjarasamninginn á Youtube sem fór fram á Teams síðastliðinn miðvikudag. Þá er að finna ýmsar upplýsingar varðandi samninginn og launareiknivél í Rauða Eplinu sem var sent félagsmönnum í liðinni viku. 

Nánar um atkvæðagreiðsluna