Þátttakan 17,52% í formannskjöri FG
Fréttir|4. maí 2022

Formannskosningar standa yfir hjá Félagi grunnskólakennara. Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 14 á laugardag, 7. maí.
Kjörsókn í formannskjöri FG var 17,52 prósent klukkan tólf í dag. Atkvæðagreiðslan hófst á hádegi í fyrradag og stendur til klukkan 14 á laugardag.
Þrjú eru í framboði til formanns
- Mjöll Matthíasdóttir, kennari í Þingeyjarskóla
- Pétur V. Georgsson, kennari í Brekkubæjarskóla
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara
- Skoða kynningar formannskandidata
- Hlekkur á kosningu
Um atvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.
- Smelltu á Atkvæðagreiðsla um formann FG 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FG.
- Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörnefndar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is, sími: 595 1111.