Þátttaka í stjórnarkjöri FSL 38 prósent

Félagar í FSL kjósa sér stjórn félagsins fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Alls höfðu 38 prósent félaga í Félagi kennara og stjórnenda leikskóla greitt atkvæði í stjórnarkjöri félagsins á hádegi í dag.
Atkvæðagreiðslan hófst í gær og henni lýkur á slaginu tólf á hádegi á morgun, miðvikudag.
Um kosninguna
Stjórn FSL skipa, auk formanns félagsins, fjórir aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar.
Ný stjórn tekur við að loknum aðalfundi félagsins, sem fer fram 24. ágúst 2026.
Ellefu framboð bárust. Í framboði eru (í stafrófsröð):
- Anna Björk Marteinsdóttir
- Elín Friðriksdóttir
- Halla Ösp Hallsdóttir
- Halldóra Guðmundsdóttir
- Jóna Rut Jónsdóttir
- Jónína Einarsdóttir
- Lísa Lotta Björnsdóttir
- Margrét Gísladóttir
- María Petrína Berg
- Marthen Elvar Veigarsson Olsen
- Nichole Leigh Mosty
Kynningar á frambjóðendum og nánari upplýsingar um starfsreynslu, menntun og áherslur þeirra er að finna á kosningavef FSL.
Kosið í nefndir á aðalfundi
Kosið er í framboðsnefnd, kjörstjórn og samninganefnd á aðalfundi og hægt er að bjóða sig fram í fyrrgreindar nefndir fram að kosningu með því að senda póst á netfangið fslframbod@ki.is.
Sigurður Sigurjónsson var sjálfkjörinn í embætti formanns á kjörtímabilinu 2026-2030.