Þátttaka í atkvæðagreiðslu FT var 44% á hádegi

Fréttir|20. janúar 2022

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT stendur yfir og lýkur klukkan 14 í dag.

Alls höfðu 44 prósent félagsmanna FT greitt atkvæði um nýjan kjarasamning félagsins klukkan tólf í dag. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 í dag. 

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifðu undir kjarasamning 11. janúar.Gildistími hins nýja samnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já,   Nei,   Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Talning auðra atkvæða

Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.