Þátttaka í atkvæðagreiðslu FF í Fjölmennt 68,75%
Fréttir|22. maí 2018

Þátttaka í sambærilegri atkvæðagreiðslu í Verzlunarskóla Íslands var heldur dræmari en þar höfðu 22,34 prósent greitt atkvæði klukkan 12 í dag.
Alls höfðu 68,75 prósent félagsmanna FF og FS hjá Fjölmennt greitt atkvæði um nýjan kjarasamning á hádegi í dag. Þátttaka í sambærilegri atkvæðagreiðslu í Verzlunarskóla Íslands var heldur dræmari en þar höfðu 22,34 prósent greitt atkvæði klukkan 12 í dag.
Atkvæðagreiðslu lýkur í báðum skólum á slaginu klukkan 12 á morgun, miðvikudaginn 23. maí.