Þátttaka 11,67% á hádegi

Fréttir|18. janúar 2022

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum stendur yfir.

Alls höfðu 11,67% greitt atkvæði um kjarasamning Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum á hádegi í dag. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. 

Atkvæðagreiðslan hófst í gær og stendur til klukkan 14 næstkomandi fimmtudag. 

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifðu undir kjarasamning 11. janúar.

Gildistími hins nýja samnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.