Þarfasti þjónninn og nemandinn

Fréttir|29. apríl 2015

Leiðtoga- og samskiptanámskeið fyrir börn á aldrinum 10 til 13 ára þar sem unnið er með hestum hefur skilað góðum árangri. Nemendurnir takast á við spennandi og eflandi verkefni þar sem komið er inn á samskiptafærni, félagsfærni og framkomu.

Markmiðið með námskeiðinu er að bæta líðan nemenda og efla sjálfstraust þeirra og sjálfsmynd. Við kennum þeim að bera ábyrgð á gerðum sínum og þau læra að taka tillit til annarra. Nemendurnir læra um leið undirstöðuatriði hestamennskunnar og að umgangast hesta af öryggi og óttaleysi. Hugmyndin er að þau finni fyrir vellíðan með hestinum í íslenskri náttúru og læri um leið að bera virðingu fyrir umhverfi sínu, sjálfum sér og öðrum. Síðast en ekki síst er markmiðið að þeim þyki vænt um lífið því hestamennskunni fylgir oftast andleg uppörvun, upplyfting og aukið sjálfstraust. Vinna við þetta þróunarverkefni hófst formlega haustið 2010, en þá fékk ég styrk úr Sprotasjóði menntamálaráðuneytisins. Áformað er að verkefnið haldi áfram og verði fastur liður í skólastarfinu. Verkefnið hlaut hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs árið 2011.

Námskeiðið gengur þannig fyrir sig að hver nemandi fær 8 til 10 skipti (um tvær klukkustundir í hvert sinn) með hestunum, stundum fleiri. Oftast er farið einu sinni í viku. Veðrið hefur auðvitað áhrif en það skemmtilega er að krakkarnir láta veðrið ekki stoppa sig. Þau vilja hitta hestinn sinn, kemba honum og snerta og svo er farið á bak og tekist á við íslenska veðráttu eins og hún er hverju sinni. Þetta samband manns og hests er svo mikilvægt. Krakkarnir mynda fljótt samband við hestinn og finna þar hlýju sem skiptir þau máli. Að auki reynir hestamennskan á fimi og þor. Nemendurnir hoppa á bak (berbakt), gera einhverjar kúnstir á baki og renna sér af en allt reynir þetta á lipurð og færni auk þess sem þau læra að treysta og þora. Verkefnið hefur skilað mælanlegum árangri í betri líðan nemenda og um leið betri árangri í námi. Foreldrar hafa líka lýst yfir ánægju með verkefnið.

Foreldri hafði þetta að segja um námskeiðið:
„Það er eitthvað sem breytist hjá syni mínum þegar hann er í hestunum. Hann er alveg með það á hreinu hvaða dag hestarnir eru og það er ekkert mál að vekja hann þá morgna. Hann hlakkar til og finnur styrk sinn – sérstaklega núna þegar hann er að aðstoða yngri nemendur. Hann verður alveg svakalega ánægður með sig og það er gaman að sjá hann blómstra. Hann hefur gífurlega trú á Herdísi og honum líður greinilega mjög vel þegar hann er í hestunum. Mesti munurinn sem ég sé er að sjálfstraustið eflist, hann verður glaðari, á betra með að höndla skólann og kemur uppveðraður heim í staðinn fyrir að vera hundþreyttur og dapur.“ 

Annað foreldri sagði þetta: 
„Þetta er frábært framtak – algjört frumkvöðlastarf. Vel skipulagt og faglega unnið. Hefur haft mjög jákvæð og góð áhrif á minn dreng. Svo hefur kennarinn (verkefnisstjórinn) náð sérstaklega vel til hans.“ 

Mikil ánægja hefur ríkt um verkefnið innan skólasamfélagsins og nemendur og foreldrar hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga enda reynslan af því góð. Ég bind vonir við að verkefnið haldi áfram um ókomin ár, og það er vilji til þess innan skólans. En til þess að það geti orðið er brýnt að útvega fjármagn því verkefni af þessu tagi er kostnaðarsamt.