Þarf að setja kennara á válista?
Aðalbjörn Sigurðsson, kynningar- og útgáfustjóri KÍ, skrifar: Verði ekkert að gert mun alvarlegur kennaraskortur blasa við hér á landi innan fárra ára. Lítið er rætt um vandann þó öll framboð til Alþingis segist hafa áhyggjur af stöðunni.
Frá því að ég hóf störf hjá Kennarasambandi Íslands fyrir rúmum þremur árum hef ég aldrei hitt manneskju sem ekki telur kennarastarfið mikilvægt. Raunar hef ég aldrei á þeim fjörutíu og fjórum árum sem ég hef lifað hitt nokkurn sem telur það léttvægt. Kennarastarfið er eitt af lykilstörfum samfélagsins. Svo einfalt er það. En menn fara ekkert sérstaklega hátt með þessa skoðun sína. Í algerri vissu um að kennarar og menntakerfið verði einhvern veginn alltaf til staðar virðast menn hafa afar takmarkaða þörf á að ræða málin. Þetta reddast... örugglega... er það ekki annars?
Hafa fáir áhuga á menntamálum?
Málefni kennara og menntun almennt er einkennilega lítið áberandi í opinberri umræðu. Í könnun sem fyrirtækið Maskína vann fyrir RÚV í aðdraganda Alþingiskosninganna 29. október sögðu til að mynda aðeins 5% að menntamál væru sá málaflokkur sem helst þyrfti að ræða í kosningabaráttunni. Sama hlutfall nefndi Reykjavíkurflugvöll, sem þýðir að Reykjavíkurflugvöllur og menntamál eru jafn mikilvæg umfjöllunarefni stjórnmálanna í dag að mati kjósenda – eins galið og það er. Á sama tíma safnast upp vísbendingar um að hratt molni undan menntakerfinu. Sparnaður og aðhald eru leiðarstefið í opinberri umræðu um menntamál, og í staðinn fyrir að ræða starfið er rætt um reksturinn. Fréttum af auknu álagi á kennara, auknum veikindum og almennum atgervisflótta úr stéttinni er síðan mætt með æpandi þögn.
Það vakti reyndar nokkra fjölmiðlaathygli þegar fyrstu niðurstöður úr meistaraverkefni Helga Eiríks Eyjólfssonar, sem unnið er í samstarfi við Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði við HÍ, birtust í sumar. Þar kemur fram að af þeim 9.327 sem hafa réttindi til að kenna í grunnskólum landsins voru aðeins 4.531 þar starfandi, eða 48,6%. Það þýðir að meira en helmingur þeirra sem hafa lagt það á sig að sækja sér kennsluréttindi velur að starfa annars staðar en í grunnskólum landsins, sem er áhyggjuefni. En það sem veldur manni mestum áhyggjum er sú spá þeirra félaga að verði ekkert að gert muni árið 2031 aðeins 7.042 einstaklingar á Íslandi hafa leyfisbréf til að kenna í grunnskólum landsins. Tuttugu árum síðar verði þessi tala komin niður í 3.689. Ef við gefum okkur að helmingur þeirra muni áfram vinna við eitthvað annað en kennslu gætum við staðið frammi fyrir því að aðeins tæplega 1.800 grunnskólakennarar yrðu starfandi í grunnskólum landsins árið 2051, sem þá verða þó með talsvert fleiri nemendur en í dag – enda fjölgar Íslendingum stöðugt.
Bregðist við – strax
Þeir félagar byggja spá sína á fjölda þeirra kennara sem munu hætta störfum á næstu árum sökum aldurs. Á móti skoða þeir hversu margir hafa útskrifast sem kennarar úr háskólum landsins síðustu ár, sem eru alltof fáir. Verði ekkert að gert stefnum við fram af himinháu hengiflugi. Tíminn til að bregðast við er núna áður en í óefni verður komið. Það þarf að hækka laun, bæta starfsskilyrði, bæta ímynd og auka áhugann. Strax! Því þó það kosti fjármuni og fyrirhöfn að mennta nýja kennara kostar það svo óendanlega mikið meira að gera það ekki. Raunar svo mikið að ég held að enginn geti ímyndað sér þá stöðu að ekki verði hægt að manna leik-, grunn- og framhaldsskóla landsins innan fárra ára. Því þó hér hafi aðallega verið fjallað um grunnskólann blasir því miður sama staða við í leik-, framhalds- og tónlistarskólum landsins. Stjórnmálamenn verða því að vakna af værum blundi sínum strax.
Í tilraun til að gera þeim rúmrusk sendi Kennarasamband Íslands á dögunum nokkrar lykilspurningar um menntamál til allra framboða til Alþingiskosninganna 29. október. Hér má sjá brot úr svörunum, en svör allra framboða í heild má finna á heimasíðu Kennarasambandsins – ki.is.
Alþýðufylkingin
Laun kennara haldast engan veginn í hendur við sífellt meiri kröfur um aukna menntun. Við sjáum ekki að MS gráða sé almennt nauðsynleg til kennslu á lægri skólastigum og viljum falla frá henni. Laun kennara ættu að vera þau sömu, eða a.m.k. mjög svipuð, burtséð frá skólastigum.
Björt framtíð
Vill beita sér fyrir því að ríkið, sveitarfélögin, háskólarnir, stéttarfélögin og starfandi kennarar myndi stefnumótunar- og viðbragðsteymi sem mótar heildarstefnu í málefnum leik- og grunnskóla í þeim tilgangi að til langrar framtíðar verði örugglega boðið upp á nám, vinnuaðstöðu og umgjörð utan um skólastarf sem stenst kröfur nútímans um góðan grunn fyrir frekara nám og lífið.
Dögun
Launaþróun er algert lykilatriði til þess að eðlileg endurnýjun verði í skólastarfi og nýir kennarar fáist til starfa. Víða á Norðurlöndunum reikna hagsmunaaðilar þörfina á endurnýjun í starfstéttum, t.d. meðal lækna og kennara. Þetta er mjög auðvelt. Sniðugt væri ef Ísland tæki einnig upp þessi vinnubrögð, þ.e. að hugsa dæmið fram í tímann.
Flokkur fólksins
Þó að Flokkur Fólksins búi ekki yfir fullmótaðri stefnu þegar kemur að menntamálum þá er alveg ljóst að við munum berjast fyrir stórlega bættum kjörum kennara til að endurspegla verðmæti þeirra fyrir samfélagið allt. Hverjum á að borga vel og halda ánægðum ef ekki þeim sem við treystum til að ala upp og kenna börnum okkar?
Framsóknarflokkurinn
Stjórnmálamenn verða að veita þessari stöðu athygli og bregðast við, áður en vandinn vex enn frekar. Viðfangsefnið kallar á fjölþætta lausn og til að vinna að henni þarf samtal háskólasamfélagsins, kennarafélaganna, ríkis og sveitarfélaga. Í því samtali þarf að fara yfir inntak námsins, starfsvettvang og kjör.
Píratar
Stór hluti af því að tækla nýliðunarvandann væri launaleiðrétting en einnig þarf nauðsynlega að halda í þá kennara sem klára nám og byrja að kenna en snúa sér að öðrum störfum eftir stutt stopp í skólum. Ein leið væri til að mynda að telja starfsreynslu réttindalausra kennara sem starfsnám.
Samfylkingin
Vill auka virðingu fyrir starfi kennara og bæta starfsumhverfi þeirra til að störf í þessum mikilvægu menntastofnunum verði eftirsóttari. Það verður að vera sameiginlegt verkefni ríkis, sveitarfélaga, fagfélaga, háskóla, foreldra og nemenda.
Sjálfstæðisflokkurinn
Það liggur í augum uppi að laun kennara þurfa að vera með þeim hætti að þau endurspegli bæði mikilvægi stéttarinnar og laði hæfileikaríkt og fjölbreytt fólk til starfa. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins á þessu kjörtímabili hafa kennarar fengið verulegar kjarabætur.
Viðreisn
Vill beita sér fyrir því að kennurum verði gert hærra undir höfði í samfélaginu okkar. Núverandi ástand er það slæmt að grípa þarf til sérstakra tímabundinna aðgerða líkt og að veita styrk/stuðning til þeirra sem vilja fara í kennara- og leikskólanám t.d. næstu fimm árin.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Gera þarf kennarastarfið að fýsilegri kosti, til dæmis með því að efla faglegt sjálfstæði kennara og leggja áherslu á skólaþróun á öllum skólastigum og tryggja fjármuni til hennar. Þá er rétt að skoða leiðir til að gera hluta af kennaranáminu að launuðu vettvangsnámi, sem og aðrar leiðir til að laða fleiri í námið.
Grein Aðalbjörns birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2016.