Þar sem glaðir spekingar leika og læra saman

Fréttir|17. júlí 2019

Heimspeki skipar stóran sess í starfi leikskólans Lundarsels á Akureyri. Börnin læra að greina hugmyndir sínar, koma auga á áður óþekkt tengsl og verða færari í að mynda sér sjálfstæða skoðun.

Skólavarðan heimsótti Lundarsel á fallegum vetrardegi í febrúar. Lundarsel er rótgróinn leikskóli, fagnar 40 ára afmæli á þessu ári, og sá fyrsti sem er byggður sem slíkur á Akureyri.

Björg Sigurvinsdóttir leikskólastjóri og Ingi Jóhann Friðjónsson, leiðbeinandi með háskólagráðu í heimspeki og meistaranemi í leikskólafræðum, tóku á móti blaðamanni í þann mund sem börnin voru á leið út að leika sér í snjónum.

Björg segir heimspekina meginstoð í starfinu en einnig er unnið markvisst að jafnrétti.

„Heimspekin er undirliggjandi í öllu okkar starfi. Börn eru spyrjandi og náttúrulega forvitin og þá er málið að grípa tækifærin og nota kveikjur til að fá samræður í gang. Matartímarnir eru gjarna nýttir til samræðna því börnin spjalla og þá er kjörið að spyrja spurninga og leiða umræðurnar áfram án þess að stýra þeim. Spyrja spurninga á borð við; geturðu sagt mér meira, hvað áttu við?“ segir Ingi Jóhann.

Forsögu þess að unnið er með heimspeki í Lundarseli má rekja til síðustu aldamóta. „Þegar ég kom til starfa hér árið 2002 þá höfðu þær Aðalbjörg Steinarsdóttir og Helga María Þórarinsdóttir nýlega lokið B.Ed ritgerð um barnaheimspeki í Háskólanum á Akureyri. Í kjölfarið var ákveðið að vinna tveggja ára þróunarverkefni með íslenskar barnabókmenntir og þjóðsögur sem uppsprettu heimspekilegrar samræðu meðal leikskólabarna. Kennarar Lundarsels útbjuggu kennsluleiðbeiningar og fleira sem er aðgengilegt á heimasíðunni okkar,“ segir Björg og bætir við að starfið hafi þróast mikið í gegnum árin; í fyrstu hafi einkum verið unnið með elstu börnunum en nú njóti allur hópurinn góðs af.

„Við vinnum með heimspekina í öllu okkar starfi en við erum með skipulagða heimspekitíma fyrir fjögurra ára hálfsmánaðarlega og fimm ára og eldri einu sinni í viku. Þá skiptum við börnunum upp í hópa, fimm til tólf börn í einu, og notum kveikjur til að hefja samræðuna. Oft erum við með íslenskar sögur en líka myndrænar kveikjur. Eitt verkefnið er að setja fram myndir sem börnin flokka eftir því hvort þeim finnast þær fallegar eða ekki. Síðan er farið yfir hverjir eru sammála eða ósammála og af hverju þá. Rökræðan skiptir máli og mikilvægt að börnin læri að það er allt í lagi að vera ósammála. Þau læra að mynda sér sér sína eigin skoðun og að það er í allt í lagi að hafa aðra skoðun en hinir,“ segir Ingi Jóhann.

Börn eru ­spyrjandi og náttúru­lega forvitin og þá er ­málið að grípa tækifærin og nota ­kveikjur til að fá ­samræður í gang.

Jafnréttið allt um kring
Jafnréttisáætlun Lundarsels er afar ítarleg og er skrifuð fyrir starfsfólk, börn og foreldra leikskólans. Þar segir meðal annars; „Við stuðlum að og ýtum undir jafnrétti kynjanna á sem fjölbreyttastan hátt. Við komum fram við alla, kennara, börn, starfsmenn og foreldra með virðingu. Sýnum traust og trúnað, hlýlegt og glaðlegt viðmót og kurteisi. Við stuðlum að og ýtum undir að þess sé gætt að jafnrétti ríki í öllu starfi leikskólans“.

„Við leggjum mikla áherslu á jafnrétti á öllum sviðum. Kyn á ekki að hamla eru okkar einkunnarorð og við vinnum markvisst gegn staðalmyndum kynjanna. Við tókum þátt í samstarfsverkefninu Rjúfum hefðirnar – förum nýjar leiðir sem var afar áhugavert og gefandi. Við leggjum áherslu á að börnin fái jafnréttisfræðslu og sé undirbúin til jafnrar þátttöku í samfélaginu,“ segir Björg.

„Við brýnum fyrir börnunum að allir megi prófa allt en fræðilega er talað um að þegar börn séu þriggja til fjögurra ára þá fari þau að tala um að eitthvað sé „stelpulegt“ og annað „strákalegt“. Við reynum að brjóta þessa „kynjun“ upp með til dæmis dótadögum þar sem er kannski leikið með dúkkur einn daginn og bíla hinn daginn. Hugmyndin er að krakkarnir sjái að allir megi leika með allt. Svo heimsækjum við fyrirtæki og skoðum við hvað foreldrarnir vinna og einnig höfum við farið í VMA til að kynna okkur námsgreinarnar þar; stelpurnar hafa kynnt sér hefðbundnar „strákagreinar“ og strákarnir hefðbundnar „stelpugreinar“. Svo höfum við tekið umræðuna með börnunum. Við reynum að kenna börnunum að vera sjálfstæð og fordómalaus,“ segir Ingi Jóhann.

Heimspeki er „stórt“ orð
Um 90 börn eru á leikskólanum Lundarseli og eru starfsmenn 25. Þar af eru 16 leikskólakennarar með leyfisbréf sem verður að teljast gott hlutfall. Flest annað starfsfólk býr yfir annarri menntun.
Starfsþróun og endurmenntun starfsfólks er afar mikilvæg að mati Bjargar.

„Við getum alltaf bætt okkur í starfi og við reynum að hvetja okkar fólk til starfsþróunar. Við tókum til dæmis öll þátt í þróunarverkefninu Hugleikur – samræður til náms í Háskólanum á Akureyri fyrir tveimur árum. Efni verkefnisins er nátengt okkar hugmyndafræði og reyndist þetta mikil vítamínsprauta fyrir allan starfsmannahópinn. Þá sér Helga María um að þjálfa nýtt starfsfólk í hugmyndafræðinni okkar – og heldur stutt námskeið fyrir nýja kennara og starfsfólk. Heimspeki er stórt orð í huga margra og sumir óttast það. En nýir kennarar fylgjast með hinum reyndari og undantekningalaust lærist þetta fljótt og vel,“ segir Björg Sigurvinsdóttir leikskólastjóri.

Áhugasamir geta heimsótt vefsíðu Lundarsels (lundarsel.is) en þar er að finna margs konar fróðleik um starfsemi leikskólans, umfjöllun um heimspeki og ítarlega jafnréttisstefnu svo fátt eitt sé nefnt.

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2019.