Það sem skiptir máli!

Fréttir|30. apríl 2022

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara og frambjóðandi til formanns á næsta kjörtímabili, skrifar um kjaramál.

Brýn verkefni liggja fyrir til að bæta kjör grunnskólakennara. Að vinda ofan af stefnumálum stjórnar Félags grunnskólakennara í kjaramálum frá árunum 2011 til 2018 er ærið verkefni. Ber þar hæst að vinda ofan af „bindingu“ og þeirri faglegu niðurlægingu sem í því fólst að selja áunnin réttindi og sveigjanleika.

Til að hægt sé að vinda ofan af „bindingar-samningnum“ frá 2014, þar sem réttindi voru seld fyrir skammvinnan gróða, þurfa kennarar öfluga forystu sem er tilbúin að berjast fyrir hagsmunum þeirra.

Því þarf að kjósa fólk sem hefur sýnt það með verkum sínum að virðing fyrir tíma kennara og faglegu sjálfstæði, þarf að vera leiðarljós í sérfræðisamningum eins og kjarasamningum kennara.

Ég hef bæði sýnt það með verkum mínum og starfi að ég gæti hagsmuna kennara og legg áherslu á sérfræðiþekkingu þeirra. Með áframhaldandi umboði ykkar mun ég leggja mig fram um að ná markmiðum síðustu samninga og endurheimta þannig faglegt sjálfstæði og virðingu fyrir tíma okkar og starfi. Það er stóra verkefnið framundan.

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir sækist eftir áframhaldandi umboði félagsmanna Félags grunnskólakennara til formennsku fyrir félagið.