Það sem kom okkur hingað, kemur okkur ekki þangað.

Örfyrirlestur um tilgang, skipulag og framkvæmd skólastarfs.
Í vikunni var ég með fyrirlestur á netráðstefnu Menntaskóla Borgarfjarðar, með stuðningi Sóknaráætlunar Vesturlands, um menntun fyrir störf framtíðarinnar. Þetta var styttri útgáfa af fyrirlestri sem ég flutti í Hljómahöll í Reykjanesbæ, ágúst 2019 fyrir haustráðstefnu grunnskólanna í Reykjanesbæ.
Þar sem ég tók hann upp í þetta skiptið taldi ég tilvalið að gera hann aðgengilegan öllum þeim kennurum, stjórnendum og skólafólki sem hafa áhuga. Þessi fyrirlestur var ennþá ítarlegri í haust enda um 45 mínútur þá, en þessi 15 mínútna örútgáfa er fín fyrir net.
Fyrirlesturinn má finna hér. Inntakið er að það sem kom okkur hingað, kemur okkur ekki þangað og að við þurfum aðra hluti til að undirbúa nemendur fyrir framtíðina þeirra heldur en þurfti fyrir fortíðina okkar.
Fyrirlesturinn er 15 mínútur og skipt í þrjá hluta sem fjalla um innihald, skipulag og framkvæmd skólastarfs.
Málið er að vélar eru að taka yfir mörg verkefni sem skólar hafa, til margra ára, lagt mikla áherslu á og því á skólastarf að ganga að miklu leyti út á það að gera okkur betri í því sem vélar geta ekki gert vel (ennþá). Þetta eru hlutir eins og samskipti, skapandi hugsun, samhygð, aðlögunarhæfni og frumkvæði.
En það er ekki nóg að við þjálfum nemendur í þessum hlutum heldur verða starfsmenn að fá þjálfun í þessu einnig. Við verðum ekki betri í því sem við gerum ef við gerum það ein og sér. Eða eins og Andy Hargreaves og Dennis Shirley sögðu í bók sinni The Fourth Way:
“Teachers and schools learn best … by watching, listening to, and learning from each other in the very act of teaching itself.”
Það er þess vegna sem flestir af þeim skólum sem eru í einhverri mestu skólaþróuninni á Íslandi hafa hafið eða eru að undirbúa teymiskennslu. Teymiskennsla þýðir ekki að umsjónarkennarar hittist á fimmtudögum og ákveði á hvaða blaðsíðu bekkirnir eiga að vera komnir niður í næstu viku og prenti saman vikuáætlun. Hún þýðir að kennarar bera sameiginlega ábyrgð á námshópi og kenna að einhverju eða öllu leyti saman.
Ég vona að þið hafið gagn og gaman af, og að einhverjar hugmyndir hér, kveiki hugmyndir hjá þér lesandi góður.
Hér er fyrirlestrinum skipt niður á mínútur:
1m 21s, tilgangur skólastarfs:
Verða betri í því sem vélar geta ekki gert vel
Vita nákvæmlega af hverju við gerum það sem við gerum
3m 48s, skipulag skólastarfs:
Saman förum við lengra (teymiskennsla)
Að nota allan heilann (mikilvægi listgreina)
10m 20s, framkvæmd skólastarfs:
Nám innan og utan skóla á að vera svipað
Lærum af því að gera