Það má alltaf blómum á sig bæta

Jóhanna Hrönn Helgadóttir kennari skrifar um kennslu margbreytilegs nemendahóps í aðsendri grein.
„Ég horfi yfir stofuna mína og það er ný vika að hefjast, (mánudagar til mæðu eins og þeir eru oft kallaðir) stutt og góð. Vetrarfríið byrjar á fimmtudaginn sem merkir að langt er liðið inn í skólaárið. Finnst það ótrúlegt, tíminn flýgur hjá. Mér finnst eins og skólinn hafi byrjað fyrir þremur vikum og krakkarnir í 1. bekknum mínum mættu með alltof stóru töskurnar sínar full tilhlökkunar. Löngu tilbúin að hefja skólagöngu sína, eignast nýja vini, læra að lesa og reikna.
Bekkurinn minn er skemmtilegur, krefjandi, fyndinn og fjölmenningarlegur. Hann er á alla vegu og ég er ótrúlega ánægð með hvernig þau standa sig, koma inn í skólann með mismunandi grunn og menningu. Öll ólík með tölu. Að kenna fjölbreyttum nemendahópi er áskorun fyrir alla kennara. Það þarf að huga að mörgu, hugsa út fyrir rammann og skoða út frá ýmsum sjónarhornum hvernig hægt er að grípa öll tækifæri sem gefast.
Skipulag kennslu með fjölbreyttan nemendahóp snýst mikið um að leita lausna hvernig hægt er að finna aðferðir og rými sem henta öllum. Aðalnámskrá grunnskóla (2011) tekur fram að skipulag og kennsla á að miðast út frá hæfileikum, þroska, persónugerð og áhugasviði nemenda. Námsumhverfið skal veita nemendum öryggi, örva og efla þá í námi sínu, þannig að ólíkir nemendur geti lært hver af öðrum í sama kennslurými, með sama námsefni en hugsanlega ekki allir á sama stað.
Kennarar skapa ákveðna umgjörð sem veitir gott námsrými sem hentar nemendum hverju sinni og sérstaklega þar sem fjölbreytileikinn kemur sterkur inn í grunnskóla um land allt. Námsrými á að mæta nemendum, bera virðingu fyrir áhugasviði þeirra, hæfni og þörfum og efla styrkleika þeirra. En lykilatriðið er að kennarar sýni jafnræði sem merkir að koma eins fram við alla nemendur.
Við lokin á skrifum mínum og eftir lestur greinannna sé ég kennslustofuna mína í nýju ljósi. Er ég sem kennari að koma til móts við bekkinn minn út frá þessum sjónarhornum? Aðferðir sem gera nemendum mínum kleift að láta í ljós sitt skína og að hæfileikar þeirra og áhugasvið komi fram án nokkurs konar vandræða. Nemendur mínir hafa blómstrað á skólaárinu og þeim gengur vel. Kennarar gera sitt besta, vilja gera allt fyrir nemendur sína svo skólagangan gangi vel og hugsa með opnu hugarfari „Það má alltaf blómum á sig bæta“ bæði út frá sjálfum sér og nemendum.“
Jóhanna Hrönn Helgadóttir kennari skrifar. Greinin var skrifuð á námskeiðinu Kennsla í margbreytilegum nemendahóp á Menntavísindasviði HÍ.
Heimildaskrá
Hafdís Guðjónsdóttir, Edda Óskarsdóttir, Anna Katarzyna Wozniczka og Karen Rut Gísladóttir. (2016). Námsrými byggð á auðlindum nemenda.
Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun: Sérrit 2016 – Námsrými félagslegs réttlætis
og menntunar án aðgreiningar Mennta- og menningarmálaráðuneyti. (2011).
Aðalnámskrá grunnskóla 2011.