Það er hér sem hjarta mitt slær

Fréttir|6. maí 2022

Monika Aafos, leikskólakennari í víkingaaldarbænum fagra, Tønsberg í Noregi, segir frá starfi sínu sem leikskólakennari og yfirtrúnaðarmaður.

Það er alveg einstaklega fínt að starfa við leikskólana í Tønsberg, andinn þar er mjög góður og ég er virkilega stolt af því að starfa hjá þessu sveitarfélagi.“  Þetta segir Monika Aafos, leikskólakennari í víkingaaldarbænum fagra, Tønsberg, elsta bæ Noregs sem fagnaði 1.150 ára afmæli sínu með viðhöfn í haust sem leið.

Monika sjálf er þó töluvert yngri, nýorðin 48 ára gömul, situr heima í sóttkví með kórónuveirusmit þegar viðtalið er tekið, en er öll hin hressasta.

Hún leikur þó tveimur skjöldum og er einnig á kafi í eilífri baráttu hinna vinnandi stétta, yfirtrúnaðarmaður, hovedtillitsvalgt eins og það heitir, hjá Tønsberg-deild kennarastéttarfélagsins Utdanningsforbundet sem er stærsta stéttarfélagið innan Unio, fjölmennustu launþegasamtaka háskólamenntaðra í Noregi, en félagar í Utdanningsforbundet voru 187.692 um áramótin. Til að setja þann fjölda í samhengi innan heildarsamtakanna eru félagar í Unio um 380.000 í 14 stéttarfélögum svo kennarafélagið skipar þar veglegan sess með nánast helming heraflans.

Menntað starfsfólk hækkar gæðastaðal leikskólans og er lykillinn að góðum leikskóla.

„Ég hef starfað á leikskóla síðan árið 2000,“ segir Monika frá og fær að ganga hér undir fornafni úr því vettvangurinn er íslenskur, „svo hlaut ég kosningu í stjórn Utdanningsforbundet árið 2012 og í núverandi stöðu yfirtrúnaðarmanns náði ég kjöri árið 2018 og sinni henni sem fullu starfi,“ heldur hún áfram. Skjólstæðingar hennar deildar stéttarfélagsins, það er að segja þeirrar sem sinnir sveitarfélaginu Tønsberg, eru kennarar bæjarins, en íbúatala Tønsberg er tæplega 60.000 manns í nokkuð dreifðri byggð þar sem grunnskólar eru í heildina tæplega 30 og leikskólarnir 53, 27 sem sveitarfélagið rekur, 24 einkareknir og tveir opnir.

Krefjandi starf og ekki vel borgað

Hugurinn hneigðist snemma að starfi með börnum, Monika hélt til Bandaríkjanna sem au pair að loknu stúdentsprófi á tíunda áratug síðustu aldar og fann köllun sína þar. Hún innritaði sig svo til náms í kennslufræðum í skóla, sem nú er löngu horfinn á braut eftir sameiningu sem gat af sér Háskólann í Suðaustur-Noregi, USN eins og hann er skammstafaður, og hélt svo út á vígvöll atvinnulífsins sem menntaður leikskólakennari.

Monika hefur starfað hjá sveitarfélaginu allan sinn starfsaldur og var síðast á Råelåsen-leikskólanum áður en kjaramál stéttarinnar urðu hennar höfuðstarfsvettvangur, en stöður trúnaðarmanna stjórnast vitanlega af lýðræðislegri kosningu félagsmanna og þótt Monika eigi farsælt starf að baki innan vébanda Utdanningsforbundet er auðvitað aldrei að vita hvaða kjörtímabil verður það síðasta að sinni og starf með yngstu þegnum Tønsberg verður hennar daglega líf á ný. Hvernig skyldi sá starfsvettvangur vera hjá frændþjóðinni?

„Ég er auðvitað búin að lifa og hrærast í þessu lengi og hef starfað á nokkrum leikskólum bæjarins, þessi sem ég er á núna er náttúruleikskóli þar sem mikið er lagt upp úr útiveru og tengslum við umhverfið og náttúruna. Auðvitað er þetta krefjandi starf auk þess sem þetta er ekki vel borgað svo sem og ég verð að játa að lífið verður öðruvísi þegar maður tekur við stöðu trúnaðarmanns, en það er hér sem hjarta mitt slær,“ svarar Monika af festu.

Tilraunaverkefni á góðri siglingu

Hvað með hlutföllin milli menntaðra leikskólakennara og annars starfsfólks á leikskólum landsins?

„Útlærðir leikskólakennarar kallast pedagogiske ledere á norsku,“ útskýrir Monika, „á deild með 18 börnum starfar einn leikskólakennari og tveir aðstoðarmenn, en eins er það alveg til í dæminu að lærðir kennarar séu tveir með einn aðstoðarmann, aðalmálið er að mönnun sé tryggð allan starfstíma leikskólans, hjá leikskólum sveitarfélagsins er sá tími frá 07:15 til 16:30. Staðan er ekki endilega sú að starfsmennirnir séu þrír allan þann tíma, yfirleitt eru þeir á vöktum sem skarast,“ heldur hún áfram og segir í framhaldinu frá átaki eða verkefni, prosjekt á norsku, sem hófst í þremur leikskólum í Tønsberg í ágúst í fyrra og gengur einfaldlega undir heitinu „Aukin grunnmönnun“. Fé var þá veitt til að ráða einn leikskólakennara og einn svokallaðan fagstarfsmann, fagarbeider, næsta stöðuþrep fyrir ofan aðstoðarmann sem engar formlegar hæfniskröfur eru gerðar til.

Staða fagstarfsmannsins felur í sér að viðkomandi hefur valið sér námslínuna „störf með börnum og ungmennum“ í framhaldsskóla, lokið í kjölfarið tveggja ára starfsþjálfun sem lærlingur, þreytt próf og verið þar með klár í slaginn. Hér má geta þess til fróðleiks að norskir framhaldsskólar hafa mjög sterka tengingu við atvinnulífið og bjóða nemendum að velja sér væntanlegan starfsvettvang snemma í náminu, byrja þá þegar að velja sér fög í samræmi við áhugasvið og búa yfir töluverðri grunnþekkingu á því sviði við stúdentspróf.

„Þetta verkefni hefur reynst mjög vel í þessum þremur leikskólum og nú er komin fjárveiting til að reka það einu ári lengur en lagt var upp með í byrjun,“ segir Monika, en með þeirri ákvörðun heldur grunnmönnunarverkefnið áfram fram í júlímánuð 2023. Hún bendir á fróðlega grein um verkefnið í bæjarblaðinu Tønsbergs Blad síðan í haust þar sem farið er rækilega ofan í saumana á því og greint frá því að stefnt sé að meiri viðveru starfsmanna, börnin skuli hafa greiðan aðgang að þeim meðan þau eru í leikskólanum, eins foreldrar og forráðamenn þegar þeir koma með börn og sækja þau, auk þess sem fastir starfsmenn, eða að minnsta kosti starfsmenn sem þekkja vel til á viðkomandi leikskóla, sinni afleysingum vegna veikindaforfalla í ríkari mæli en almennt er.

Forfallatölfræði ómarktæk á veirutímum

Gæði starfsins í leikskólanum eru rauður þráður í mönnunarverkefninu og vakandi auga er haft með veikindafjarvistum með tilliti til þess hvort ef til vill dragi úr þeim þegar örlítið fleiri hendur leggjast á plóginn. Leikskólakennari, sem blaðið ræðir við, kveður aukastarfsmann hreinan lúxus, með þeim landvinningum sé hægt að skipta börnunum niður í örlítið smærri hópa en ella og koma þar með betur til móts við þau, tjáskipti verði æ mikilvægari enda sú tíð löngu liðin þegar norska var eina móðurmál yngstu skjólstæðinga skólakerfisins.

Foreldrarnir fá svo að taka þátt í öllu saman og þreyta spurningakannanir til að meta upplifun þeirra. „Mér finnst eins og komið sé meira til móts við þarfir barnanna og um leið virðist starfsfólkið afslappaðra og almennt eiga náðugri daga,“ skrifar foreldri nokkurt.

Monika játar að reyndar hafi sá þáttur verkefnisins, sem snýr að tölfræði veikindaforfalla, farið algjörlega fyrir ofan garð og neðan í heimsfaraldri kórónuveiru. „Eiginlega var ómögulegt að fylgjast með veikindaforföllum miðað við þær forsendur sem gefnar voru í verkefninu,“ segir hún af þeim vettvangi þar sem skórinn kreppti hvað mest í veirufárinu, skólakerfinu.

Burtséð frá veirumálum kveður Monika almennt engan hörgul hafa verið á starfsfólki þegar komi að ráðningum og almennum mönnunarmálum á leikskólum í Tønsberg. „Við erum í svo miklu nágrenni við háskólann,“ segir hún og á við áðurnefndan USN sem útskrifar meðal annars leikskólakennara „hingað koma nemendur hvaðanæva af landinu og svo þegar þeir ljúka námi hafa þeir gjarnan áhuga á að vera hér áfram,“ segir hún, enda skiljanlegt þar sem Tønsberg og svæðið suður eftir til Kristiansand er hvort tveggja náttúru- og veðurparadís, ekki síst bærinn Sandefjord sem nefndur hefur verið „norska rívíeran“ með hvítum sandströndum og hálfgerðri Spánarstemmningu.

Hingað koma nemendur hvaðanæva af landinu og svo þegar þeir ljúka námi hafa þeir gjarnan áhuga á að vera hér áfram.

Lykillinn að góðum leikskóla

Yfirtrúnaðarmaðurinn kveður það skýra stefnu Utdanningsforbundet að auka hlutfall menntaðra leikskólakennara af starfsfólki hvers leikskóla í 50 prósent, þetta hlutfall sé nú 43,5 prósent og betur megi því ef duga skuli. „Þessu höfum við barist fyrir í mörg ár og erum loksins að ná eyrum stjórnvalda, stjórnmálamenn voru ekkert sérstaklega uppteknir af málefnum leikskóla fyrir bara tíu árum. Menntað starfsfólk hækkar gæðastaðal leikskólans og er lykillinn að góðum leikskóla,“ segir Monika ákveðin.

Tími hennar hjá Utdanningsforbundet hefur að hennar sögn verið lærdómsríkur og gjörólíkur þeim starfsvettvangi sem hún er vönust, engin lognmolla heldur, því ekki er lengra síðan en í júní í fyrra að verkfall Unio, sem í það sinnið snerist um laun, beinharða peninga, lamaði starfið á sjö leikskólum í Tønsberg í níu daga þegar 22.500 starfsmenn sveitarfélaga víða um Noreg lögðu niður störf í kjarabaráttu sinni.

Líða tekur að lokum fróðlegs spjalls enda ótækt að kvelja fólk í sóttkví með spurningavaðli. Fjölskylduhagir og tómstundir eru þó alltaf skylduspurningar. „Ég er gift þriggja barna móðir,“ svarar Monika, en eiginmaður hennar er Fredrik Aafos, framkvæmdastjóri fyrirtækis sem sinnir einangrun bygginga. Er fjölskyldan búsett í Tolvsrød, nokkra kílómetra austur af miðbæ Tønsberg. „Maður reynir auðvitað að hreyfa sig eitthvað, en það fer nú svona gjarnan eftir annríki í vinnunni. Við förum á skíði í vetrarfríinu, það er ekki eins og maður geri það hér í Vestfold,“ segir Monika með aðkenningu að hlátri og vísar til þess að heimafylkið er þekkt fyrir flest annað en hrikalegt alpalandslag.

Og þar setjum við punktinn frá Tønsberg í Noregi.

 

Viðtalið við Moniku birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2022.