„Það er ævintýri að vera leikskólakennari“

Kennarinn og aðstoðarskólastjórinn Vessela Stoyanova Dukova talar við Svövu Jónsdóttur blaðamann um að leika með sjálfbærni í leikskólanum.
Svava Jónsdóttir skrifar:
Vessela Stoyanova Dukova blandar saman áhuga sínum á leik og sjálfbærni í kennslustörfum sínum. Hún ákvað að hefja kennaranám eftir að hafa flust ung til landsins frá Búlgaríu, þá nýútskrifuð úr viðskiptafræði. „Mig langaði ekki að starfa sem viðskiptafræðingur og sitja allan daginn fyrir framan tölvu þótt ég vissi að ég fengi þá hærri laun,“ segir Vessela en Svava Jónsdóttir tók hana tali fyrir Skólavörðuna.
Vessela Stoyanova Dukova er frá borginni Dobrich í Búlgaríu. „Búlgaría er mjög fallegt land með langa sögu. Náttúran er mjög falleg, á sumrin er hægt að fara á ströndina við Svartahafið og á veturna á skíði,“ segir hún.
Vessela ákvað að fara í háskólanám í viðskipta- og hagfræði í Búlgaríu af því það var mjög vinsælt að læra viðskiptafræði og hún var óviss um hvað hana langaði að læra. Eftir útskrift og B.S. próf komst hún þó að því, aðeins 21 árs gömul, að enga vinnu var að fá þar í landi fyrir nýútskrifaðan viðskiptafræðing á þessum tíma. Ástandið var ekki gott í Búlgaríu. „Það var kreppa, mikið atvinnuleysi og ég fékk aldrei tækifæri til að vinna við mitt fag eftir útskrift.“
Hún ákvað því að elta ástina og fara til Íslands, 1. apríl 1998, en eiginmaður hennar, sem einnig er frá Búlgaríu, hafði flust til landsins árinu áður til að spila og þjálfa blak. Hún var 22 ára gömul þegar hún kom til landsins fyrir 26 árum. „Eins og mamma segir þá er ég búin að búa á Íslandi meirihluta lífs míns.“
Lærði íslensku af samstarfsfólkinu
Eftir komuna til landsins fór Vessela að vinna á Landspítalanum þar sem hún segist hafa kynnst yndislegu fólki. Hún vann líka um tíma í Myllunni með eldri, íslenskum konum sem hún segir að hafi bara talað íslensku svo hún þurfti að læra íslensku til að geta talað við þær.
Vessela og eiginmaður hennar eiga tvo syni. Sá eldri er 23 ára og er atvinnuflugmaður og sá yngri er 19 ára og útskrifast í vor sem stúdent frá Menntaskólanum við Sund.
Ég er mjög glöð að ég, stelpan frá Búlgaríu, get kennt í íslenskum háskóla. Starfið í háskólanum hjálpar mér að vera í takt við nýjustu rannsóknir í skólastarfi og styður mig í að vera öruggari sem fagmaður.
„Ég byrjaði að vinna í leikskóla eftir að ég eignaðist yngri strákinn minn. Mig langaði að prófa að vinna þar til að bæta mig í íslenskunni. Ég var mjög dugleg að hlusta, fylgjast með og læra hvernig samstarfsfólkið mitt vann og talaði við börnin og bað þau um að leiðrétta mig þegar ég sagði eitthvað rangt á íslensku til að geta orðið betri í tungumálinu,“ segir Vessela og bætir við: „Ég var eini erlendi starfsmaðurinn í leikskólanum. Ég var með mjög góðar fyrirmyndir sem hjálpuðu mér að byrja að elska leikskólastarf.“
Í fullu námi, starfi og móðurhlutverki
Eftir að hafa starfað sem leiðbeinandi í leikskólanum í fjögur ár var henni boðið að verða deildarstjóri. Hún segir að skólastjórinn hafi sagst vita að hún yrði flottur leikskólakennari og að hún vissi að með því að bjóða henni þessa stöðu myndi Vessela fara í kennaranám. Hún segist alltaf verða þakklát skólastjóranum sem hafði trú á henni.
„Þetta var erfitt tímabil. Ég var í fullri vinnu og fullu námi og með fjölskyldu. Ég fór alltaf að læra eftir að börnin voru sofnuð og það voru margar svefnlausar nætur. En ég var líka heppin vegna þess að maðurinn minn studdi mig mikið og leyfði mér ekki að gefast upp,“ segir hún um námstímabilið.
„Ég vissi að mig langaði að vinna með börnum og að menntuninni fylgdi starfsöryggi og að sjálfstraustið ykist. Mig langaði ekki að starfa sem viðskiptafræðingur og sitja allan daginn fyrir framan tölvu þótt ég vissi að ég fengi þá hærri laun. En peningarnir skiptu mig ekki öllu máli,“ segir Vessela, sem útskrifaðist svo vorið 2016 með M.Ed. í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands.
Leikir eru ekki bara fyrir börn
Í náminu heillaðist Vessela af aðferðafræðinni að kenna með leikjum. „Það er alltaf gaman og spennandi að leika. Leikir eru ekki bara fyrir börn heldur fyrir okkur fullorðnu líka. Ég minni alltaf börnin og samstarfsfólkið mitt á hvað leikskóli þýðir – skóli til að leika og það á að vera gaman og skemmtilegt af því að við erum hér til að leika okkur.“
„Aðferðin að læra í gegnum leiki er mjög góð til að kenna börnunum alls konar viðfangsefni. Með leikjum getum við öðlast þekkingu og færni á skemmtilegan hátt. Leikir geta aukið skapandi hugsun barnanna og stuðlað að því að þau muni efnið betur.“

Vessela Stoyanova Dukova
Sjálfbærni í fyrirrúmi
Vessela fjallaði um aðferðafræðina í meistaraverkefni sínu Leikið með sjálfbærni. „Ég er mjög sjálfbær kona og mig langaði að búa til eða safna námsefni fyrir leikskóla til að fræða börn um sjálfbærni.“ Tilgangur verkefnisins var þannig að koma á framfæri aðgengilegum hugmyndum sem nýta mætti í kennslu og starfi tengdu sjálfbærni í leikskólum.
„Við kennum börnunum að flokka rusl og endurvinna en menntun til sjálfbærni er ekki bara það heldur svo miklu meira. Menntun til sjálfbærni kennir okkur líka að við þurfum að lifa í sátt og samlyndi við aðra og hvernig við lærum að öðlast þekkingu og að vera heilbrigðar manneskjur,“ segir Vessela.
„Að mínu mati er það án efa mjög gagnlegt að draga þetta efni saman og mér fannst tilvalið að búa til leikjabanka með leikjum og verkefnum tengdum viðfangsefnum leikskólans, sérstaklega um sjálfbærni. Þá þurfum við ekki að verja jafnmiklum dýrmætum tíma í að finna upp og leita að verkefnum fyrir leikskólabörn.“
Vefsíða spennandi lending
Vessela viðurkennir að hún hafi ekki verið spennt fyrir að skrifa meistararitgerð og heldur viljað gera eitthvað annað til að sleppa við umfangsmikil skrif. „Þá kom leiðbeinandi minn með þá hugmynd að ég gæti búið til vefsíðu. Ég er mjög mikið tölvunörd og þetta var besta lausnin fyrir mig,“ segir hún.
„Með vefsíðu er hægt að setja inn upplýsingar um leiki og myndir eða stutt myndbönd sem segja miklu meira en skrifuð orð. Með vefsíðugerð er pappír einnig sparaður, í anda sjálfbærrar hugsunar. Auk þess má halda áfram að bæta við efni, stækka vefsíðuna og þróa áfram eftir að hún hefur verið sett í loftið. Vefsíðan er opin og ekki bara hægt að skoða hana í tölvunni heldur líka í snjalltækjum.“
Að mínu mati var tilvalið að búa til leikjabanka með leikjum og verkefnum tengdum viðfangsefnum leikskólans, sérstaklega um sjálfbærni
Traust samstarfsfólksins mikilvægt
Vessela kemur víða við í kennslustörfunum. Hún er aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Vinagerði og kennir leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. „Gildi mín sem leikskólakennara og stjórnanda eru alltaf að vera góður og faglegur leiðtogi og fyrirmynd fyrir samstarfsfólkið mitt, að þau geti treyst á mig og að ég sé alltaf til staðar fyrir þau.“
Vessela er einnig gestalektor í Menntafléttunni á námskeiði fyrir starfsfólk leikskóla sem hefur annað móðurmál en íslensku. „Um leið og ég var spurð hvort ég vildi taka þátt í þessu námskeiði sagði ég strax já. Ég var í þeirra sporum fyrir 18 árum síðan þegar ég byrjaði að vinna í leikskóla. Ég get ímyndað mér hvernig þeim líður að vera í starfsumhverfi þar sem þau skilja ekki allt en vilja læra og langar að vinna í leikskólanum. Mig langar að hjálpa ef ég get. Þetta er mjög gott framtak hjá Menntafléttunni.“

Vessela í skólaheimsókn í leikskóla í Búlgaríu.
Afrek að byrja að kenna framtíðarkennurum
Líkt og áður segir er Vessela auk þess aðjúnkt við kennsludeild HÍ þar sem hún kennir leikskólafræði. „Fyrir þremur árum síðan var auglýst starf leiðtoga á vettvangi hjá Menntavísindasviði og ein vinkona mín benti mér á það og sagði að þetta starf væri akkúrat fyrir mig. Ég hló að henni en hún var að meina það. Ég ákvað að sækja um en bjóst aldrei við að mér yrði boðið í viðtal. En svo varð og ég var ráðin í 25% starf.“
Hún segir að fyrsta árið hafi verið strembið. Þá starfaði hún sem aðstoðarkennari við deildina. „Ég þurfti að lesa allar námsbækur sem nemarnir voru að lesa til að vera inni í kennslunni. Mér fannst eins og ég væri aftur komin í nám og fannst það smá erfitt en það tókst og var gaman,“ segir hún.
„Núna er ég aðjúnkt í 30% starfi og er byrjuð að kenna. Samstarfskennarar mínir treysta á mig til að halda fyrirlestra og kennslutíma og ég er orðin öruggari. Ég er mjög glöð að ég, stelpan frá Búlgaríu, get kennt í íslenskum háskóla. Starfið í háskólanum hjálpar mér að vera í takt við nýjustu rannsóknir í skólastarfi og styður mig í að vera öruggari sem fagmaður.“
Erfitt að segja til um hvað gerist næst
En hvað geymir svo framtíðin í skauti sér? „Ég grínast oft með að ég sé að ganga skref fyrir skref upp stiga atvinnulífsins. Ég er manneskja sem getur ekki stoppað í að þróast í starfi. Mig langar alltaf að vita meira og meira og gera eitthvað nýtt,“ segir Vessela.
„Fyrir 18 árum síðan byrjaði ég að vinna í leikskóla sem leiðbeinandi. Ég er búin að vera deildarstjóri í mörg ár og núna er ég aðstoðarleikskólastjóri, lektor og háskólakennari. Hvað verð ég næst? Kannski leikskólastjóri?“ spyr hún og bætir við: „Ég veit það ekki en ég veit að ég elska og vil vera í kringum börn og eins og ég hef oft sagt: Það er ævintýri að vera leikskólakennari.“