Tengslaráðstefna um fyrstu ár skólagöngunnar

Fréttir|14. október 2014

Erasmus + landskrifstofa menntaáætlunar ESB á Íslandi auglýsir eftir þátttakendum á tengslaráðstefnu í Bruges í Belgíu dagana 26.-30. nóvember 2014. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Early Childhood Education and Care“. Markhópurinn eru leikskólakennarar, leikskólastjórar, kennarar á yngstu stigi grunnskóla, starfsmenn skólaskrifstofa/fræðsluráða/menntastofnana og stjórnendur sveitarfélaga sem tengjast leikskólamálum eða fyrstu árum grunnskólans.

Á tengslaráðstefnuna kom aðilar frá öðrum Evrópulöndum og er aðaltilgangur hennar að tengja aðila saman frá mismunandi löndum með það í huga að senda inn umsókn í samstarfshluta áætlunarinnar í næsta umsóknarfresti árið 2015. Stefnumiðuð samstarfsverkefni er nýr flokkur innan Erasmus+ sem hefur það að markmiði að þróa eða yfirfæra nýjungar á ólíkum stigum menntunar, sjá nánar.

Í umsókn skal koma fram nafn, kennitala og reynsla umsækjenda. Einnig skal koma fram rökstuðningur fyrir styrkveitingu, hvort viðkomandi hafi reynslu af erlendu samstarfi og hvort umsækjandi sé með hugmynd að samstarfsverkefni. Meginreglan er sú að ekki fari nema einn frá hverjum skóla, stofnun eða sveitarfélagi.

Íslenska landskrifstofan greiðir ferðir (allt að 650 evrur) og uppihald og ráðstefnugjald (700 evrur) fyrir þrjá þátttakendur frá Íslandi.

Sótt er um með því að senda póst á erasmusplus@rannis.is