Tengjum námið við lífið utan skólastofunnar

Stækkaðu framtíðina er verkfæri fyrir allt skólasamfélagið. Öflugt tæki til að tengja nám við lífið utan skólastofunnar sem stuðlar að jafnari tækifærum.
Verkefnið Stækkaðu framtíðina býður kennurum og náms- og starfsráðgjöfum í grunn- og framhaldsskólum upp á áhrifaríkt verkfæri til að víkka sjóndeildarhring nemenda, brjóta upp staðalímyndir og dýpka skilning á tengslum náms við líf og störf í samfélaginu.
Með sérsmíðaðri vefgátt sem auðveldar aðgengi að fjölbreyttum fyrirmyndum úr atvinnulífinu skapast tækifæri til að auka áhuga og innsýn nemenda í ólíkar náms- og starfsleiðir – allt frá fyrsta bekk og upp í framhaldsskóla.
Ný nálgun byggð á rótgrónum hugmyndum
Starfskynningar eru ekki ný fyrirbrigði í íslenskum skólum – en oft hafa þær verið háðar tengslaneti einstakra kennara, náms- og starfsráðgjafa eða staðbundnum aðstæðum. Stækkaðu framtíðina er fyrsta heildstæða kerfið á Íslandi sem byggir á opnu og aðgengilegu vefkerfi þar sem starfsfólk skóla getur sjálft fundið sjálfboðaliða og skipulagt heimsóknir eða kynningar með lágmarks fyrirhöfn.
Áhersla er lögð á að hefja starfskynningar strax í yngstu bekkjum grunnskólans þar sem rannsóknir sýna að viðhorf barna til starfa og menntunar mótast snemma. Með því að bjóða fjölbreyttum fyrirmyndum í heimsókn, hvort sem þær eru smiðir, hjúkrunarfræðingar, forritarar, kvikmyndagerðarfólk eða frumkvöðlar, má ögra staðalímyndum og sýna að allir möguleikar eru opnir – óháð kyni, búsetu eða bakgrunni.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég get sjálf farið inn á vefgátt og valið gest sem passar nákvæmlega við það sem við erum að læra. Það er mikill munur að hafa þetta svona aðgengilegt og nemendurnir voru himinlifandi
— Kristín Guðmundsdóttir kennari á miðstigi
Einföld og notendavæn vefgátt
Kjarninn í verkefninu er vefgáttin, þar sem kennarar og náms- og starfsráðgjafar geta skráð sig og leitað að sjálfboðaliðum eftir t.d. starfsgrein, menntun, tungumáli eða landshluta. Með örfáum smellum er óskað eftir heimsókn í eigin persónu eða rafrænt og svo viðburður, sem fellur að kennslu eða náms- og starfsfræðslu, skipulagður.
Gáttin er hönnuð með þarfir skólafólks í huga. Þar má finna leiðbeiningar, verkefnahugmyndir og handbækur fyrir mismunandi aldurshópa. Markmiðið er að gera ferlið aðgengilegt og skemmtilegt – þannig að þátttaka verði einföld og áhrifarík.

Það hefur sýnt sig að heimsóknirnar auðga kennsluna og opna nýjar leiðir til að tengja nám við atvinnulífið.
Lifandi tenging við námsefnið
Sjálfboðaliðar heimsækja kennslustundir og segja frá starfi sínu og námi. Nemendur fá tækifæri til að spyrja spurninga og sjá hvernig nám í grunnskóla getur nýst í ólíkum störfum. Þannig verður til mikilvægt samtal um framtíðina – og hvernig við komumst þangað.
Atvinnulífið breytist hratt og sjaldan hefur verið brýnna að eiga opið samtal við nemendur um fjölbreytt nám og störf. Heimsóknirnar tengjast námsmarkmiðum í t.d. íslensku, samfélagsgreinum, náttúrufræði og listgreinum og styðja við samþættingu. Þær nýtast einnig vel í náms- og starfsfræðslu.
Stækkaðu framtíðina nýtist vel sem leið fyrir nemendur til að átta sig á ólíkum störfum, tengja eigin áhuga við námsleiðir og skipuleggja eigin náms- og starfsferil.
— Jónína Kárdal, náms- og starfsráðgjafi
Þróað í samstarfi við skólasamfélagið
Verkefnið byggir á alþjóðlegri fyrirmynd, Inspiring the Future, sem hefur verið innleitt í Bretlandi og víðar. Íslenska útgáfan var sett á laggirnar af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu. NýMennt – Nýsköpun og menntasamfélag við Menntavísindasvið Háskóla Íslands – heldur utan um verkefnið og þróar það í samstarfi við ráðuneyti, sveitarfélög, kennara og náms- og starfsráðgjafa.
Fjölmargir skólar tóku þátt í þróunarfasa verkefnisins með jákvæðum viðbrögðum frá bæði nemendum og starfsfólki. Það hefur sýnt sig að heimsóknirnar auðga kennsluna og opna nýjar leiðir til að tengja nám við atvinnulífið.
Okkar framtíð – rödd nemenda skiptir máli
Samhliða heimsóknum stendur nú yfir könnunin Okkar framtíð, opin öllum grunnskólanemendum út skólaárið. Þar fá börn og ungmenni tækifæri til að tjá sig um draumastörf, áhugasvið og framtíðarsýn. Könnunin er mikilvæg leið til að leyfa röddum barna og ungmenna heyrast í umræðu um störf og menntun framtíðar.
Við hvetjum alla skólastjórnendur, kennara og náms- og starfsráðgjafa til að tryggja að nemendur fái tækifæri til þátttöku – því framtíðin á ekki að mótast einungis af væntingum fullorðinna, heldur líka af draumum unga fólksins okkar.