Telur von til að samningar náist fyrir vinnustöðvun
Aðalfundur Félags grunnskólakennara var settur á Grand hóteli í morgun. Alls sitja 110 fulltrúar fundinn sem stendur í dag og á morgun.
Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, hélt ávarp við upphaf fundarins. Ólafur fór yfir gang samningaviðræðnanna að undanförnu og sagði allt kapp yrði lagt á að ná samningum áður en til vinnustöðvunar kemur á fimmtudaginn í næstu viku. „Síðustu vikur hafa verið mjög annasamar, mikið fundað en enn án niðurstöðu,“ sagði Ólafur.
Hann sagði samningaviðræðurnar meðal annars hafa snúist um nýtt vinnumat á starfi grunnskólakennara og í slíku gætu falist ýmis tækifæri. „Við teljum að við séum langt komin með grind að vinnumati sem verkefnastjórn gæti tekið við, þróað áfram og við kosið um síðar,“ sagði Ólafur.
Hvað varðar launlið samninganna sagði Ólafur markmiðin ekki hafa breyst. „Við viljum fá sömu laun og aðrar háskólamenntaðar stéttir sem hafa sömu menntun og bera sömu ábyrgð og við. Frá því hvikum við ekki,“ sagði Ólafur.
Hann sagði samninganefndina stefna að því að ljúka samningagerð áður en til vinnustöðvunar kemur. „Við sitjum alla daga við þessa vinnu, langt fram á kvöld og um helgar. Við teljum enn von til þess að það sé hægt að ná samningi fyrir 15. maí en auðvitað verður tíminn að leiða það í ljós,“ sagði Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara.