Tangi hlýtur Orðsporið 2025

Fréttir|6. febrúar 2025

Leikskólinn Tangi á Ísafirði hlýtur Orðsporið 2025 á Degi leikskólans fyrir að vera leiðandi leikskóli á Íslandi í útinámi.

Orðsporið, hvatningarverðlaun leikskólans eru veitt árlega á Degi leikskólans, 6. febrúar. Sjötti febrúar er merkisdagur í sögu leikskólans en á þeim degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök.

Í ár kemur Orðsporið í hlut leikskólans Tanga, leikskóla fyrir fimm ára börn á Ísafirði sem er leiðandi í útinámi, en verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skólastarf eða umbætur og þróun í menntamálum eða í kennsluháttum á leikskólastiginu. 

Guðrún Birgisdóttir, skóla- og sérkennslufulltrúi hjá Ísafjarðarbæ, veitti Jónu Lind Kristjánsdóttur, skólastjóra Tanga, viðurkenninguna fyrir hönd aðstandenda Orðsporsins, sem komust ekki vestur vegna veðurofsa. Upphaflega stóð til að athöfnin færi fram á torgi bæjarins þar sem leikskólinn býður bæjarbúum reglulega í kakó og kynnir útistarf sitt. Vegna veðurs var þó ákveðið að færa herlegheitin yfir á útisvæði leikskólans þar sem hægt var að kveikja varðeld og njóta. Hægt er að skoða myndir frá athöfninni, sem Ágúst Atlason ljósmyndari tók, hér fyrir neðan.

Kennarasambandið óskar Tanga til hamingju með Orðsporið og framúrskarandi leikskólastarf.

 

Guðrún Birgisdóttir, fulltrúi Orðsporsins, afhenti Jónu Lind Kristjánsdóttur, skólastjóra Tanga, viðurkenninguna. Ágúst Atlason ljósmyndari fangaði athöfnina á mynd.

 

Vald- og heilsueflandi nám

Í tilnefningu segir um Tanga að hann sé leiðandi leikskóli á Íslandi í útinámi. Þar læri börn um veður, náttúruna og hvernig hægt sé að útbúa sig og takast á við þær mismunandi aðstæður sem útiveran býður upp á hverju sinni.

 „Það er ótrúlega gaman að sjá hér 5 ára börn á vappi um bæinn á gönguskíðum, með ennisljós og bakpoka í snjóstormi, en það stöðvar þau ekkert. Krafturinn í starfsfólkinu er líka aðdáunarverður en þau koma öll til vinnu á eigin vélarafli (hjóli eða gangandi),“ segir í tilnefningunni. „Áhugaverðast er að sjá börn með ólíkar greiningar blómstra og eflast við að stunda mikla útiveru á leikskólanum sínum“.

Í umsögn valnefndar segir að verkefnið sé afar áhugavert og „tikki í mörg box“, svo sem hvað varðar Menntastefnu og Aðalnámskrá leikskóla. „Þetta er valdeflandi fyrir börnin, heilsueflandi, snertir geðrækt, styður við forvarnir, eflir útiveru og náttúruupplilfun, svo eitthvað sé nefnt, og nær bæði til barna og kennara,“ segir í umsögninni.

Valnefnd um Orðsporið 2024 er skipuðu fulltrúum Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, barna- og menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samtakanna Heimili og skóli. Gaman er að segja frá því að tæplega 80 tilnefningar bárust valnefnd að þessu sinni, og því ljóst að mikið verkefni beið valnefndarinnar við að velja úr tilnefningum sem allar bera leikskólastarfi fagurt vitni. 

Læra mest á eigin upplifunum

Fimm ára börn á Ísafirði og í Hnífsdal sameinast í leikskólanum Tanga sem er staðsettur í húsnæði Tónlistarskóla Ísafjarðar, við Austurveg 11. Þar eru um 7 kennarar og 34 börn saman komin síðasta árið áður en þau hefja nám í grunnskóla.

 

Nemendur leggja grunn að snjókarli í aðdraganda afhendingar. Mynd: Ágúst Atlason.

 

Í skólanum, þar sem starfið byggir á Aðalnámskrá, er lögð áhersla á umhverfismennt og útinám. „Við erum með dásamlegt nærumhverfi sem við nýtum vel í okkar starfi, lærum á bæinn okkar, fjöllin, fjöruna, skóginn, náttúruna og veðrið. Við elskum að vera úti í öllum árstíðum og veðri og við lærum mest með eigin upplifunum og rannsóknum. Okkur þykir gaman að elda úti og takast á við áskoranir. Það er hægt að gera ævintýri úr flestu og börn elska ævintýri,“ segir á vef skólans.

Þá má þess geta að Leikskólinn Tangi fagnaði átta ára starfsafmæli 19. janúar síðastliðinn. „Það hefur verið hefð hjá okkur öll þessi ár að halda útiafmæli fyrir Tanga því það er sú menning sem við leggjum mesta áherslu á - útimenningin. Við fórum út á Norðurtanga, kveiktum varðeld, sungum og borðuðum piparkökur. Veðrið var dásamlegt okkur til heiðurs, logn og stilla og við áttum mjög notalega stund úti.“

Höldum upp á Dag leikskólans

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefur svo verið gert um langt árabil. Líkt og áður sagði á 6. febrúar sér þó lengri sögu, því á þessum degi fyrir 75 árum stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

Við hvetjum kennara, stjórnendur og starfsfólk leikskólans til að halda upp á daginn, hver með sínum hætti. 

Einkunnarorð dagsins eru: Við bjóðum góðan dag – alla daga!