Takmarkanir á skólastarfi vegna COVID-19
Fréttir|24. mars 2021

Staðnám í grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum er bannað til og með miðnætti 1. apríl 2021
Á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Hörpu kl. 15 kom fram að staðnám í grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum er bannað til og með miðnætti 1. apríl 2021. Þessi aðgerð er einn liður í aðgerðum sem ætlað er að stemma stigu við fjórðu bylgju covid af völdum breska afbrigðis kórónuveirunnar.
Reglugerð um takmarkanir á skólastarfi er í vinnslu.