#Takk kennarar – ályktanir kennarafélaga streyma inn

Samstaðan er sterk sem aldrei fyrr, segir stjórn FG í ályktun. Kennarafélög víða um land hafa sent frá sér ályktanir.
Stjórn Félags grunnskólakennara stendur þétt við bakið á kennurum og hvetur þá til að halda áfram að láta rödd sína heyrast. Stjórnin sendi frá sér hvatningu í formi ályktunar 15. október.
Er þar vísað í ummæli borgarstjóra, á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna, sem hafa kallað fram sterk viðbrögð kennara. Ásamt því að hvetja kennara til dáða er minnt á kröfuna um jöfnun launa milli markaða sem er sameiginlegt baráttumál alls félagsfólks Kennarasambandsins.
Ályktunin hljóðar svo
#Takk kennarar
Í kjölfar ummæla borgarstjóra Reykjavíkur um kennara á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og viðbragða fundargesta við ummælunum hafa kennarar andmælt orðræðunni harðlega. Samstaða meðal kennara er áþreifanleg og sterk sem aldrei fyrr og bera greinaskrif og umræður, bæði á frétta- og samfélagsmiðlum vott um það.
Sameiginlegt baráttumál kennara er jöfnun launa á milli almenna- og opinbera vinnumarkaðarins.
Stjórn FG stendur þétt við bakið á kennurum og hvetur þá til að halda áfram að láta í sér heyra með málefnalegri umræðu og vandaðri orðræðu.
Fjárfestum í kennurum!
Stjórn Félags grunnskólakennara, 15. október 2024
Kennarafélög hafa sýnt stuðning í verki og sent hvatningu í formi ályktana til stjórnar og samninganefndar.
Grunnskólakennarar vilja að menntun og ábyrgð sé metin til launa til jafns við aðra háskólamenntaða sérfræðinga, auk þess krefjumst við þess að fyrri samningar séu efndir. Það er óumdeilanlegt að kennarar gegna lykilhlutverki í samfélaginu og mæta með fagmennsku og jákvæðni þeim sífellt flóknari áskorunum sem fylgja kennarastarfinu.
- Úr ályktun Kennarafélags Vesturlands
Við krefjumst þess að jöfnun launa verði höfð að leiðarljósi við gerð nýrra kjarasamninga og að samið verði sem fyrst.
- Úr ályktun Kennarasambands Vestfjarða
Enginn efast um mikilvægi eða fagmennsku grunnskólakennara í þeim faglegu og félagslegu áskorunum sem sífellt færast í aukana. Við krefjumst þess að að jöfnun launa verði höfð að leiðarljósi við gerð nýrra kjarasamninga og að samið verði sem fyrst.
- Úr ályktun Kennarasambands Norðurlands vestra
Við grunnskólakennarar viljum að menntun og ábyrgð sé metin til launa til jafns við aðra háskólamenntaða sérfræðinga, auk þess krefjumst við þess að staðið verði við fyrri samninga.
- Úr ályktun Kennarafélags Vestmanneyja
Núna er nóg, faglegar og félagslegar áskoranir í starfi kennara hafa líklega aldrei verið meiri og því þarf að manna skóla með menntuðum kennurum, það á að vera forgangsverkefni til að styðja og styrkja æsku landsins.
Úr ályktun Kennarafélags Suðurlands
Ályktanir kennarafélaga
Kennarasamband Norðurlands vestra
Fréttin var síðast uppfærð 19. október 2024. Hér er hægt að skoða allar ályktanir sem hafa borist.